Steina – Málþing

fös

3. okt

13:0017:00

Boð og endurómur: Málþing til heiðurs Steinu

Á málþinginu sem skipulagt er af Listasafni Íslands og Listasafni Reykjavíkur, koma saman innlendir og erlendir fræðimenn og ræða brautryðjendastarf Steinu og varanleg áhrif hennar á sviði rafrænna miðla.

Málþingið er haldið í tilefni sýningarinnar Steina: Tímaflakk, sem skipulögð er af MIT List Visual Arts Center í samvinnu við Buffalo AKG -listasafnið. Sýningarstjórar eru Natalie Bell (MIT List Visual Arts Center) og Helga Christoffersen (Buffalo AKG-listasafnið)

Dagskrá

13:05 – 13:20 – Safnstjórar
Opnunarávarp safnstjóra, grunnur lagður að viðfangsefni málþingsins.

13:20 – 14:00 – Larisa Dryansky
Larisa Dryansky kannar einstaka stöðu Steinu Vasulka sem frumkvöðuls í þróun vídeólistar með áherslu á framlög hennar og áhrif á miðilinn.

14:05 – 14:25 – Helga Christofferson og  Natalie Bell
Sýningastjóratvíeykið Helga og Natalie kynna ramma þeirrar hugmyndafræði sem liggur að baki sýningarinnar og segja frá sínu rannsóknarferli sem sýningarstjórar.

Hlé – 15 mínútur

14:40 – 15:00 – Chris Hill
Chris Hill fjallar um áralangt samstarf sitt  við Steinu og segir frá því skapandi og tilraunakennda andrúmslofti sem mótaði fyrstu verk Steinu og Woody Vasulka.

15:00 – 15:20 – Lenka Dolanová
Lenka Dolanová kynnir rannsókn sína á tækninýjungum Steinu og Woody Vasulka og tilraunakenndum nálgunum og aðferðum þeirra við vídeólist, eins og fjallað er um í bók hennar Dialogue with the Demons of the Tools.

15:20 – 15:40 – Sigríður Regína Sigurþórsdóttir
Sigríður Regína ræðir um doktorsrannsókn sína um Vasulka Stofu – sem er miðstöð fyrir raf- og stafræna list á Íslandi.

15:40 – 16:00 – Margrét Elísabet
Margrét Elísabet rannsakar tengingu Steinu við íslensku listasenuna, áhrif hennar á heimamenn og hvernig hún hefur innlimað íslenska náttúru og umhverfi í listsköpun sína.

Hlé – 15 mínútur

16:15 - 17:00 – Pallborðsumræður um tækninýjungar.
Æsa Sigurjónsdóttir stjórnar pallborðsumræðum og eru þátttakendur Jennifer Helia DeFelice, Joey Heinen, Chris Hill, og Sirra Sigrún Sigurðardóttir. Umræðan mun snúast um áhrif Steinu á samtímalistina og þróun á hlutverki nýmiðla.  

17:00 Lokaávarp - safnstjórar
Lokaávarp og hugleiðingar frá safnstjórum.

Móttaka og léttar veitingar að viðburði loknum.

Skráning

Ýtið hér

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17