
Krakkaklúbburinn Krummi
lau
25. apríl
14:00—16:00
Barnamenningarhátíð 2026: Öndvegissúlusmiðja Ingólfs
Landnámsmaðurinn Ingólfur Arnarson horfir yfir Reykjavík af stalli sínum á Arnarhóli, en stendur líka keikur í bláa salnum í Listasafni Einars Jónssonar. Við setjumst hjá Ingólfi í bláa salnum og hjálpum honum að búa til öndvegissúlur og skreyta þær á nýtískulegan hátt með skemmtilegum mynstrum og litum.
Krakkaklúbburinn Krummi stendur fyrir fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá í hverjum mánuði þar sem kátum krökkum er boðið að fræðast um listaverkin í safneign Listasafns Íslands, skapa listaverk og leika sér í nærandi umhverfi.

