Sýningaropnun

fös

23. maí

17:0019:00

Listasafnið

Þér og þínum er boðið að vera við opnun sýningar­innar Endurlit föstudaginn 23. maí 2025, kl. 17:00, í Listasafni að Fríkirkjuvegi 7. Með sýningunni beinir Listasafn Íslands sjónum að verkum listmálarans Kristjáns Helga Magnússonar (1903–1937) sem lést aðeins 34 ára að aldri, eftir stuttan en áhugaverðan feril. Málverk Kristjáns Helga vöktu athygli bæði hér á landi og erlendis þegar hann geystist fram á myndlistarvettvanginn fyrir tæpum 100 árum. Hann hélt meðal annars sýningar í stórborgum austan hafs og vestan, þar sem hann hlaut lofsamlega dóma fyrir landslagsmálverk, mannamyndir og uppstillingar. Á Íslandi hlutu verk hans hins vegar blendnar viðtökur og í dag eru þau fáum kunn og nafn hans heyrist sjaldan í umræðunni um íslenska myndlist. Engu að síður er framlag hans til listasögunnar tölu vert að vöxtum og áhugavert fyrir margra hluta sakir.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga 10–17