
Sýningarstjóraspjall
sun
7. sept
14:00—15:00
Hildigunnur Birgisdóttir
6:1 (grænmeti), 2024
Ljósmynd: Vigfús Birgisson, birt með leyfi listamannsins og i8 gallerí
Dan Byers sýningarstjóri ræðir við Hildigunni Birgisdóttur um sýninguna Þetta er mjög stór tala (Commerzbau) sem var framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum árið 2024 en er nú á Listasafni Íslands. Hildigunnur er þekkt fyrir að gefa hinu smáa gaum í listsköpun sinni og varpa gagnrýnu ljósi á hnattræn framleiðslu- og dreifingarkerfi, sem og hið undarlega lífshlaup varningsins sem þessi kerfi skapa. Í verkum sínum beinir hún athyglina að litlum, einnota hlutum sem gjarnan eru fjöldaframleiddir fylgifiskar neyslumenningarinnar: umbúðum, verðmiðum, merkingum og útstillingareiningum. Hún fær þessum hlutum nýtt hlutverk en gildi þeirra og merking gjörbreytist þegar komið er út fyrir hið upprunalega samhengi þeirra.
Viðburðurinn fer fram á ensku
Aðgögnumiðinn gildir