Sýningarstjóraspjall við Hildigunni Birgisdóttur

lau

31. maí

14:0015:00

Listasafnið

Sýningarstjóraspjall við Hildigunni Birgisdóttur

31. maí kl. 14
Dan Byers sýningarstjóri ræðir við Hildigunni Birgisdóttur um sýninguna Þetta er mjög stór tala (Commerzbau) sem var framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum árið 2024 en verður nú á Listasafni Íslands. Hildigunnur er kunn fyrir að gefa hinu smáa gaum í listsköpun sinni og varpa gagnrýnu ljósi á hnattræn framleiðslu- og dreifingarkerfi, sem og hið undarlega lífshlaup varningsins sem þessi kerfi skapa. Í verkum sínum dregur hún athyglina að litlum, einnota hlutum sem gjarnan eru fjöldaframleiddir fylgifiskar neyslumenningarinnar: umbúðum, verðmiðum, merkingum og útstillingareiningum. Hún fær þessum hlutum nýtt hlutverk en gildi þeirra og merking gjörbreytist þegar komið er út fyrir hið upprunalega samhengi þeirra.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 - 17