![](/_next/image/?url=https%3A%2F%2Fimages.prismic.io%2Flistasafn-islands%2Feb1ed8e3-9256-4c3e-8285-58261f476249_Kynningarmynd-Vi%25C3%25B0%2Bsj%25C3%25A1um%2B%25C3%25B3v%25C3%25A6nt%2Babstrakt.jpg%3Fauto%3Dcompress%2Cformat&w=3840&q=100)
Krakkaklúbburinn Krummi
lau
20. apríl
14:00—16:00
Við sjáum óvænt abstrakt
Leikum okkur með form, liti og frjálsa listsköpun. Listaverkin á sýningunni Við sjáum óvænt abstrakt veita innblástur.
Með Krakkaklúbbnum Krumma vill Listasafn Íslands veita börnum og fjölskyldum þeirra tækifæri til þess að njóta góðra stunda saman á safninu. Dagskráin er vönduð og öllum er velkomið að taka þátt.
Merki krakkaklúbbsins er fengið út barnabókinni Rauði hatturinn og krummi eftir Ásgerði Búadóttur myndlistarmann.
Ókeypis fyrir alla fjölskylduna.