Þorkell máni

1946 - 1947

Einar Jónsson 1874-1954

LEJ-116
  • Ár1946 - 1947
  • GreinFlokkun LÍ / Trúarlegar myndir / Goðsagnamyndir / Norrænar, Flokkun LÍ / Fígúratíf fantasía, Skúlptúr
  • Stærð116 x 115 x 46 cm
  • EfnisinntakTungl, Börur, Sól, Engill, Víkingur
  • AðalskráMyndlist/Hönnun
  • UndirskráEinar Jónsson myndverk
  • EfniÓlífræn efni / Steinategund / Gifs
  • AðferðTækni/Gifssteypa
Lýsing

Skúlptúr. Þorkell máni. Maður á börum. Tveir menn halda á börunum. Engill krýpur undir börunum og ber hendur til hvorrar hliðar. Sól er undir höfði mannsins á börunum og stafar frá þeim geislum. Hálfmáni og stjörnur. Dauði Þorkels mána. Í Landnámabók (9. kafla) segir: "Son Þorsteins [Ingólfssonar Arnarsonar] var Þorkell máni lögsögumaður, er einn heiðinna manna hefir best verið siðaður, að því er menn viti dæmi til. Hann lét sig bera í sólargeisla í banasótt sinni og fal sig á hendi þeim guði, er sólina hafði skapað; hafði hann og lifað svo hreinliga sem þeir kristnir menn, er best eru siðaðir."

Höfundarréttur

Listasafn Einars Jónssonar

Heimild

Íslensk wiki-síða um Þorkel mána Landnáma, snerpa.is

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17