Þróun
1913 - 1914
Einar Jónsson 1874-1954
- Ár1913 - 1914
- GreinSkúlptúr
- Stærð44.5 x 37 x 48 cm
- EfnisinntakMaður, Uxi, Kross, helgitákn + hlutv., Bæn
- AðalskráMyndlist/Hönnun
- UndirskráEinar Jónsson myndverk
- EfniÓlífræn efni / Málmur / Eir
- AðferðTækni/Afsteypa
Bronsafsteypa. Þróun. Uxi liggur aðframkominn, jötunn sem krýpur fram á annað hné heldur í uxann og í mann, sem stendur uppréttur. Sá heldur á hnetti sem kross kemur upp úr, á krossinum er maður og letrað INRI fyrir ofan. Maður í bæn liggur fram á krossinn. „Þróun (eða Miðtíð) 1913-14. Vöxtur mannsins frá dýrinu í sjálfum honum.“ (Myndir, 1925) „Hér tákna dýrið, jötuninn og maðurinn þrjú andleg tilverustig. Dýrið liggur og hringar sig í makindum. Jötuninn veit fram en hann krýpur álútur. Hann heldur annarri hendi í dýrið, en hinn handleggurinn liggur þungt á herðum mannsins, sem stendur uppréttur. Armur jötunsins log líkami mannsins mynda kross. Jötuneðlið í manninum er honum þung byrði. Og þó heldur hann krossmarki hátt á loft þar sem hann hefur gert það að sigurmarki sínu. FUllkomnum fæst fyrir þjáningar. Sama trú birtist í myndinni Deiglan, þar sem sálin, göfguð af jáningum, stígur í fagnandi lofgerð til himins.“ (Útgefið efni LIstasafnsins) Gifsafsteypa, sjá LEJ-97. Evolution - Évolution - Die Evolution - Evolutionen
HöfundarrétturListasafn Einars Jónssonar
HeimildEinar Jónsson: Myndir. Kaupmannahöfn, 1925.
