Þróun (skissa)

1913 - 1914

Einar Jónsson 1874-1954

LEJ-290
  • Ár1913 - 1914
  • GreinFlokkun LÍ / Fígúratíf fantasía, Skúlptúr
  • Stærð17 x 13.5 x 19.5 cm
  • AðalskráMyndlist/Hönnun
  • UndirskráEinar Jónsson myndverk
  • EfniÓlífræn efni / Steinategund / Gifs
  • AðferðTækni/Gifssteypa
Lýsing

Skúlptúr. Skissa að Þróun. Uxi liggur aðframkominn, jötunn sem krýpur fram á annað hné heldur í uxann og í mann, sem stendur uppréttur. Sá heldur á hnetti sem kross kemur upp úr, á krossinum er maður og letrað INRI fyrir ofan. Maður í bæn liggur fram á krossinn. „Þróun (eða Miðtíð) 1913-14. Vöxtur mannsins frá dýrinu í sjálfum honum.“ (Myndir, Kaupmannhöfn, 1925) „Hér tákna dýrið, jötuninn og maðurinn þrjú andleg tilverustig. Dýrið liggur og hringar sig í makindum. Jötuninn veit fram en hann krýpur álútur. Hann heldur annarri hendi í dýrið, en hinn handleggurinn liggur þungt á herðum mannsins, sem stendur uppréttur. Armur jötunsins log líkami mannsins mynda kross. Jötuneðlið í manninum er honum þung byrði. Og þó heldur hann krossmarki hátt á loft þar sem hann hefur gert það að sigurmarki sínu. FUllkomnum fæst fyrir þjáningar. Sama trú birtist í myndinni Deiglan, þar sem sálin, göfguð af jáningum, stígur í fagnandi lofgerð til himins.“ (Útgefið efni LIstasafnsins) Fullgerð, sjá LEJ-97. Bronsafsteypa (LEJ-214) í Höggmyndagarðinum við Listasafn Einars Jónssonar.

Höfundarréttur

Listasafn Einars Jónssonar

Heimild

Einar Jónsson: Myndir. Kaupmannahöfn, 1925.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17