Freyja

1989 - 1990

Hildur Hákonardóttir 1938-

Sýningartexti
Freyja er gyðja ástar og frjósemi í norrænni ásatrú og leiðir heiti verksins hugann að þessari máttugu ásynju. Kvenveran á myndinni minnir þó ekki á gyðju þar sem hún er nakin í vatninu án allra guðlegra tákna og sú Freyja sem birtist okkur hér er miklu fremur sýnd sem hluti af náttúrunni. Mánasigðin við sjónarrönd brýtur upp bakgrunninn og minnir á náttúrulegar sveiflur sem tengjast tunglinu. Hildur Hákonardóttir hóf að vefa árið 1968 og voru fyrstu verk hennar beinskeytt innlegg í pólitíska umræðu samtímans. Smám saman urðu verk hennar þó hógværari og snerust meira um persónulegar vangaveltur og tengingu við náttúruna. Meðal þess sem Hildur velti fyrir sér var myndræn framsetning á norrænum gyðjum í gegnum tíðina. Í kjölfarið fæddist hugmyndin að þessu verki sem Hildur byggir á eigin reynslu af lækningarmætti heita vatnsins.   Freyja is the Norse goddess of love and fertility, and the title of the work gives rise to thoughts of this powerful deity. The female figure in the tapestry does not, however, recall a goddess: she is portrayed naked, immersed in water, and without any symbols of godlike nature. The Freyja we see here is depicted more as part of nature. The crescent moon on the horizon disrupts the background and reminds us of the natural cycles that relate to the moon. Hildur Hákonardóttir started weaving in 1968. Her early works were forthright contributions to the political discourse of the time, but her work gradually came to focus more on the artist’s personal thinking and the bond with nature. Hildur gave thought, for instance, to the visual representation of Norse goddesses over the centuries, and this led her to the concept of this tapestry, which reflects the artist’s own experience of the curative properties of Iceland’s natural hot water.
LÍ-11543
  • Ár1989 - 1990
  • GreinFlokkun LÍ / Trúarlegar myndir / Goðsagnamyndir, Flokkun LÍ / Mannamyndir, Textíllist / Myndvefnaður, Textíllist
  • Stærð130 x 125 x 0 cm
  • EfnisinntakÁsatrú, Vatn, Gyðja, Kona
  • AðalskráMyndlist/Hönnun
  • UndirskráAðalskrá
  • EfniLífræn efni / Textíll / Náttúruleg vefjarefni / Ullargarn, Lífræn efni / Textíll / Náttúruleg vefjarefni / Bómullargarn
  • AðferðTækni/Textíltækni/Vefnaður
  • Merking gefandaGjöf listamannsins.
Höfundarréttur

Myndstef, Hildur Hákonardóttir

Heimild

International Tapestry Network. Itnet and Anchorage Museum, Alaska 1990.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17