Fygli

2022-2023

Ólöf Nordal 1961-

LÍ -12120-0

Fygli er innsetning með skúlptúrum, texta og hljóðmynd. Ólöf Nordal hefur lengi unnið með fugla í verkum sínum sem oft eiga rætur í þjóðtrú, ímyndarsköpun og menningu samtímans. Fygli eru skúlptúrar steyptir í brons sem sýna fígúrur í umbreytingu. Formgerð þeirra vísar í umskipti frá gervi manns í gervi fugls, frá hinu efnislega til hins andlega. Fyglin eru af heimi gróteskunnar og þess kynlega, en ýja líka að farfuglum þeim sem fljúga yfir hafið jafnt í formi fugls sem og í mennskri formgerð. Verkið er í samtali við nýtt verk Ólafar sem ber heitið Mannfuglar og er staðsett í garði hjúkrunarheimilisins Móbergs á Selfossi. Ólöf hefur unnið með menningararfinn, söguna og minni þjóðarinnar í verkum sínum á gagnrýninn og greinandi hátt. Listrannsóknir hennar beinast að sjálfsmynd þjóðar á eftir-nýlendutímum, uppruna og endurspeglun þjóðsagnaminna í samtímanum og brotinu sem spegli inn í fortíðina.

  • Year2022-2023
  • TypeNýir miðlar - Innsetningar
  • SummaryFugl, Furðuvera
  • Main typeMyndlist/Hönnun
  • MaterialBrons

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 - 17