Grátandi karllægur skúlptúr frá tíunda áratugnum

2014

Egill Sæbjörnsson 1973-, Alexander Borchert

LÍ-12158
  • Ár2014
  • GreinFlokkun LÍ / Abstraktmyndir, Skúlptúr
  • Stærð71 x 15 x 18 cm Lengd varpaðrar hreyfimyndar: Endalaus Hæð, breidd, dýpt skúlptúrs: Samtals rými sem þarf: Helst ekki minna en 3 x 3 metrar
  • EfnisinntakTár, Listasaga
  • AðalskráMyndlist/Hönnun
  • UndirskráAðalskrá
  • EfniÓlífræn efni / Steinategund / Gifs
  • AðferðTækni/Forritun
  • Útgáfa / Sería1 / 5
Lýsing

Gifsmyndin virðist við fyrstu sýn vera dæmigerður skúlptúr frá níunda áratug síðustu aldar en þegar betur er að gáð má greina hreyfingu á yfirborði verksins sem vekur undrun og sá sem staldrar við getur fylgst með endalausum tárum renna tilviljanakennt niður sléttar, upplýstar hliðarnar á skúlptúrnum. Það eru þó ekki raunveruleg tár sem streyma, heldur eru tárin kölluð fram með gervigreindarforriti sem varpar þeim þeim á skúlptúrinn. Sjálfsskapandi eiginleiki verksins undirstrikar þá skoðun Egils að listaverk hafi sjálfstæða tilvist, þau séu lifandi og kröftug og hafi áhrif á umhverfi sitt. Verkið fjallar hugsanlega einnig um skörun stafrænnar víddar og efnislegrar víddar samtíman og hefur þannig margs konar heimspekilegar skírskotanir.

Höfundarréttur

Myndstef, Egill Sæbjörnsson

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17