Ürügüdd (hringur)

2017

Egill Sæbjörnsson 1973-

LÍ-12159

Egill Sæbjörnsson er íslenskur samtímalistamaður sem býr og starfar í Berlín. Egill útskrifaðist frá fjöltæknideild MHÍ 1997 og hefur alla tíð unnið í ólíka miðla í sinni list, allt frá popptónlist yfir í margmiðlun og skúlptúra. Hann skapar tilbúna heima eða innsetningar, þar sem hann blandar saman teikningum, skúlptúrum, vídeóverkum, hljóðverkum, tölvutækni, gagnvirkni og gervigreind. Verk hans eru full af hugmyndaauðgi, húmor og sköpunargleði þar sem ólíkar, skáldaðar persónur spretta fram, stundum í formi trölla eða sítalandi steina. Þannig dregur hann áhorfandann inn í heim listarinnar þar sem sköpunarkraftur og leikgleði eru alltumlykjandi.

Persónusköpun er rauður þráður í list Egils og árið 2008 rak hann augun í norska tröllastyttu með langt og mjótt nef sem sat uppi á hillu í búð á flugvellinum í Osló. Styttan vakti athygli hans fyrir að vera skemmtileg klisja af hugmyndinni um tröll og í kjölfarið bjó hann til ótal teikningar og leirstyttur af tröllum sem þróuðust yfir í tröllin Úr og Búr (Ūgh og Bõögâr). Smám saman urðu til Úr og Búr, ímyndaðir samstarfsmenn Egils, og árið 2017 bauð hann þeim að sýna með sér á Feneyjartvíæringnum. Þar setti Egill upp sýningu á listaverkum eftir sjálfan sig og tröllin. Þannig setur Egill sig inn í hugarheim barnsins þar sem mörkin á milli raunveruleika og ímyndunarafls skarast. Síðan þá hafa tröllin skapað, sýnt og ferðast með Agli um allan heim. Í fyrstu mætti ætla að þarna væru á ferðinni tröll ættuð úr íslenskum þjóðsögum en þegar betur er að gáð gætu þau eins verið sprottin upp úr neyslumenningu nútímans.

Tröllahringurinn varð til þegar  Úr & Búr fóru að búa til eigin gullskartgripi á vinnustofu Egils, bæði til að dást að og skreyta sig með. Þar sem tröll eru með stórgerða fingur eiga þau erfitt með nákvæmni og urðu skartgripirnir frekar stórir og klunnalegir. Með natni og þolinmæði bjuggu Egill og tröllin til yfir 100 gullhringi sem hafa verið sýndir á myndlistarsýningum víða um heim. En tröll eiga það til að gleyma sér í leikgleðinni og þegar gullskartgripirnir voru sýndir á Listasafni Íslands, urðu Úr og Búr rosalega montin og sjálfumglöð. Egill þarf stöðugt að minna tröllin á að tileinka sér meiri hófsemi og samkennd.

  • Ár2017
  • GreinSkúlptúr
  • Stærð12 x 47 x 30 cm
  • AðalskráMyndlist/Hönnun
  • UndirskráAðalskrá
Höfundarréttur

Egill Sæbjörnsson, Myndstef

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17