Sveiflur

1964 - 1965

Þorvaldur Skúlason 1906-1984

Sýningartexti
Upp úr 1950 var Þorvaldur Skúlason einn af forvígismönnum geómetrískrar abstraktlistar hér á landi. Þessi stefna hefur einnig verið kölluð strangflatarmálverk, enda einkennist hún af beinum línum, grunnformum og eintóna, sléttum litaflötum án tilvísunar til ytri veruleika. Síðar lagði Þorvaldur megináherslu á hreyfingu og samspil línu og litar í abstraktverkum sínum eins og sjá má í verkinu Sveiflur frá 1964–1965. Hér er myndrýmið opið og mikil hreyfing á myndfletinum líkt og formin séu að þenjast út og hefja sig til flugs. Hlutlaus brúnn litur er í grunninum sem Þorvaldur sprengir síðan með heitum, rauðum og gulum litum. Þessi nýi formræni skilningur sem Þorvaldur þróaði í verkum sínum fékk um miðjan sjöunda áratuginn nýjar áherslur og kraft vegna sterkra náttúruhrifa sem þá má greina í verkum hans.
LÍ-1325
  • Ár1964 - 1965
  • GreinFlokkun LÍ / Abstraktmyndir, Málaralist / Olíumálverk
  • Stærð200 x 146 x 0 cm
  • EfnisinntakAbstrakt
  • AðalskráMyndlist/Hönnun
  • UndirskráAðalskrá
  • EfniÓflokkað (í vinnslu) / Málning/Litur / Olíulitur
  • AðferðTækni/Málun
  • Merking gefandaGjöf listamannsins 1966.
  • Útgáfa / Sería1
Höfundarréttur

Myndstef, Þorvaldur Skúlason - Erfingjar

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17