Klettar 9

1965

Ragnheiður Jónsdóttir Ream 1917-1977

LÍ-1366
  • Ár1965
  • GreinFlokkun LÍ / Landslagsmyndir, Málaralist / Olíumálverk, Málaralist
  • Stærð106.5 x 96.5 x 0 cm Stærð með ramma: 111,5 x 101 x 0 cm
  • EfnisinntakAbstrakt, Landslag, Klettur
  • AðalskráMyndlist/Hönnun
  • UndirskráAðalskrá
  • EfniÓflokkað (í vinnslu) / Málning/Litur / Olíulitur, Lífræn efni / Textíll / Ýmis vefjarefni / Strigi
  • AðferðTækni/Málun
Lýsing

Verk Ragnheiðar Jónsdóttur einkennast af rökfestu og nánd. Nálægðina skynjar áhorfandinn í myndskipuninni og persónulegri túlkun landslagsins þar sem blæbrigði lita skapa hrynjandi sem minnir á upplag listakonunnar og bakgrunn í tónlist. Í verkinu Klettar 9 koma fyrir bláir og hvítir litir með tónrænu ívafi og örlitlu af heitum rauðum lit sem kallast á við bláu tónana og skapar gullvægt jafnvægi milli spennu og kyrrðar. Sérstaða Ragnheiðar fellst í innsæi hennar og ferskri sýn á náttúruna þar sem ögun hennar í tónlistinni hefur eflaust sitt að segja en hún hafði lokið námi í píanóleik.  Landslagið skipar veglegan sess í myndum hennar þá einkum heiðarlönd og vellir, klettar og klungur í forgrunni mót sjóndeildarhringnum sem ber við hátt á myndfletinum. Þessi huglægi kjarni verka hennar gefur þeim sérstöðu í íslensku landslagsmálverki. Segja má að liturinn sé undirstöðuhljómur í myndum hennar og ber glöggt vitni um hæfileika hennar á sviði myndlistar. Ragnheiðuri kom með ferskan blæ inn í íslenska landslagslist og myndlistarsenu þegar hún flutti heim frá Washington árið 1969. Vakti hún strax athygli fyrir fágað og persónulegt myndmál og ljóðrænan myndstíl í anda William de Kooning og Richard Deberkorn. RP

Höfundarréttur

Ragnheiður Jónsdóttir Ream-Erfingjar, Myndstef

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17