Amma segðu mér sögu

1930

Tryggvi Magnússon 1900-1960

LÍ-389

Amma segðu mér sögu

Tryggvi Magnússon fæddist aldamótaárið 1900 þegar  sjálfstæðisbarátta Íslands stóð sem hæst. Tryggvi var fjölhæfur listamaður og flinkur teiknari. Hann er talinn brautryðjandi grafískrar hönnunar á Íslandi. Tryggvi nam myndlist í Bandaríkjunum og síðar í Dresden í Þýskalandi og þar kynntist hann skoptímaritum og teiknurum sem höfðu mikil áhrif á hann. Árið 1926 stofnaði Tryggvi hið geysivinsæla skopblað Spegilinn sem hann teiknaði í. Sem ungur maður vann hann fyrir sér sem teiknari og hannaði ótal merki og auglýsingar, meðal annars landvættina á skjaldamerki Íslands (1944). Tryggvi myndlýsti fjölda bóka og er sú þekktasta án efa kvæðakverið Jólin koma eftir Jóhannes úr Kötlum frá 1932. Þar teiknaði hann íslensku jólasveinana á lipran og frjóan hátt. Síðan þá hefur bókin skipað stóran sess í jólaundirbúningi íslenskra barna.

Þrátt fyrir mikla velgengni Tryggva sem teiknari dreymdi hann stóra drauma um að verða listmálari. Málverkið Amma segðu mér sögu sýndi Tryggvi á sýningu í Góðtemplarahúsinu 1930 þar sem myndefni allra verkanna var byggt á íslenskum þjóðsögum. Teiknihæfileikar Tryggva njóta sín vel í þessu olíumálverki sem er málað af mikilli nákvæmni. Í forgrunni stendur eldri kona sem snýr að tveimur börnum. Við horfum aftan á börnin en framan á konuna sem gæti verið amma þeirra. Ef til vill er hún að segja þeim sögu af jólakettinum en hægra megin er stækkuð skuggamynd af hvítum ketti sem stendur ofan á kistli vinstra megin við þau. Amman, börnin og kötturinn standa við eldstæðið og rauður bjarmi frá eldinum lýsir upp myndina. Dulræn birtan skapar ævintýralegt andrúmsloft og minnir okkur á áhrifamátt sagnalistarinnar og íslenskra þjóðsagna. Í bakgrunni er eldhús í hefðbundnum torfbæ, þar sem fólk stytti sér stundir á kvöldin við að segja hvert öðru sögur í rökkrinu.

  • Ár1930
  • GreinFlokkun LÍ / Innanhússmyndir, Flokkun LÍ / Sögulegar myndir, Málaralist / Olíumálverk
  • Stærð100 x 125 x 0 cm
  • EfnisinntakSaga, Amma, Barn
  • AðalskráMyndlist/Hönnun
  • UndirskráAðalskrá
  • EfniLífræn efni / Textíll / Ýmis vefjarefni / Strigi, Óflokkað (í vinnslu) / Málning/Litur / Olíulitur
  • AðferðTækni/Málun
Höfundarréttur

Tryggvi Magnússon, Myndstef

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17