LÍ 3922

Haukur Dór Sturluson 1940-

LÍ-3922

Haukur Dór kom fyrst fram á tímamótasýningunni SÚM I í Ásmundarsal árið 1965 en einbeitti sér síðan að leirlist og hélt ekki einkasýningu á málverkum fyrr en 1977. Mörg málverka hans eru fyrirferðarmikil og áferðin hrjúf en litanotkunin er iðulega hófsöm. Á síðari hluta 8. áratugarins notaði Haukur Dór oftar en ekki aðeins hvíta og svarta málningu og bætti svo við gráum tónum til að kalla fram tjáningarríkar ímyndir mannslíkamans eða landslags. Í þessum verkum er umfjöllunarefnið samband nútíma Íslendings við landið sem hann byggir en að mati Hauks Dórs eru mörkin milli líkama og landslags oft óljós.

Þetta verk tilheyrir röð málverka þar sem ákveðið stef, samþjöppuð lífræn form sem minna á mannverur í öngstræti, gengur í gegnum öll verkin. Svört útlínuteikning dregur fram hvít formin sem listamaðurinn fellir inn í ólíkt samhengi, lætur þau svífa í skilgreindu rými eða leggur áherslu á tvívíddareiginleika flatarins. Gráir fletir í bakgrunni einkenna öll verkin og sparlega notaður rauður litur dregur athyglina að sér. Kvik pensilskrift og sparsöm litanotkun með svart og hvítt í fyrirrúmi leiðir einnig hugann að úfnu vetrarlandslagi en fígúran er aldrei langt undan.

  • GreinFlokkun LÍ / Abstraktmyndir, Málaralist / Olíumálverk
  • Stærð148 x 198 x 0 cm Stærð með ramma: 149,5 x 201 x 0 cm
  • EfnisinntakAbstrakt
  • AðalskráMyndlist/Hönnun
  • UndirskráAðalskrá
  • EfniÓflokkað (í vinnslu) / Málning/Litur / Olíulitur
  • AðferðTækni/Málun
  • Merking gefandaGjöf listamannsins 1978.
Höfundarréttur

Haukur Dór Sturluson, Myndstef

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17