Himinn og jörð

1982

Hildur Hákonardóttir 1938-

LÍ-4346

Hildur Hákonardóttir er íslenskur myndlistarmaður og rithöfundur. Hún tók virkan þátt í jafnréttisbaráttunni á áttunda áratug síðustu aldar og var skólastjóri Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1975-1978. Hildur vakti snemma athygli fyrir að taka pólitíska afstöðu í verkum sínum. Hún fjallaði um hlutskipti kvenna, talaði fyrir jafnrétti og gagnrýndi stéttaskiptingu í íslensku samfélagi. Á síðari árum hefur hún jafnframt talað fyrir náttúruvernd og unnið að ræktun nytjajurta ásamt því að sinna ritstörfum.

Á áttunda áratugnum var hlutverk listarinnar í samtímanum mjög til umræðu og birtist pólitísk afstaða með afgerandi hætti í verkum listamanna sem létu málefni líðandi stundar til sín taka. Oft voru kvenfrelsisbarátta og umhverfismál í brennidepli. Barátta kvenna fyrir viðurkenningu textíllistar fór saman við jafnréttisbaráttuna og smám saman var kunnátta kvenna metin að verðleikum. Hildur er meðal brautryðjenda í textíllist á Íslandi og hún hefur  meðvitað notað vefnað í sinni listsköpun. Vefnaður á sér langa sögu og varðveitir verkkunnáttu sem hefur gengið frá konu til konu í gegnum aldirnar. Verkin vísa í aldagamalt handverk, menningu kvenna og sögu myndlistar á Íslandi.

Á níunda áratugnum fór Hildur að sækja meiri innblástur í náttúru og landslag. Verkið Himinn og jörð frá 1982 er ofið veggteppi þar sem grænn litur jarðarinnar rennur saman við bláma himinsins en framan við verkið má sjá nokkurs konar gróðurpíramída, manngert form úr plexígleri utan um endurtekna ljósmynd af afmörkuðum gróðurreit, sem er álfhóll í túni listakonunnar. Í verkinu veltir hún fyrir sér tímanum og samhengi hlutanna. Ef til vill táknar hið forna pýramídaform valdapýramídann í samfélaginu þar sem einn trónir á toppnum og aðrir raðast kerfisbundið í sætin fyrir neðan.

  • Ár1982
  • GreinFlokkun LÍ / Landslagsmyndir, Textíllist, Skúlptúr / Blönduð tækni
  • Stærð202 x 94 x 0 cm Myndvefnaður:  202 x 94cm; Ljósmynd (69 x 115). Hæð verksins samanlagt: 249,5 cm.
  • EfnisinntakHiminn, Jörð
  • AðalskráMyndlist/Hönnun
  • UndirskráAðalskrá
  • EfniLífræn efni / Pappír, Lífræn efni / Dýraríki / Hár / Ull
  • AðferðTækni/Textíltækni/Vefnaður, Tækni/Ljósmyndun
  • Útgáfa / Sería1
Höfundarréttur

Hildur Hákonardóttir, Myndstef

Heimild

Nordisk textiltriennal 1982-1983. Sýningarskrá. Hildur Hákonardóttir, yfrlitssýning á Kjarvalsstöðum 14.2.-12.3.2023, útgáfa

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17