Sjódraugur

1951 - 1952

Finnur Jónsson 1892-1993

LÍ-4441

Finnur Jónsson nam myndlist í Danmörku og Þýskalandi og varð þar fyrir miklum áhrifum af erlendum straumum og stefnum, einkum geómetrískri abstraktlist og expressjónískum stíl. Eftir að Finnur flutti heim að loknu námi í Þýskalandi ferðaðist hann um landið með Tryggva Magnússyni listmálara. Hann varð hugfanginn af fegurð öræfanna og höfðu ferðirnar mikil áhrif á landslagsmálverk hans. Landslagsmyndir Finns eru ekki hefðbundnar eftirmyndir af hálendinu eða upphafnar náttúrulýsingar. Þær fanga dulúð öræfanna og oft blandast þjóðsögur og sagnaminni inn í verkin.

Í verkinu Sjódraugur er landslagið eins konar bakgrunnur eða sögusvið og myndefnið tekið úr þjóðsögu. Sjódraugar eru draugar sem hafast við í og við sjóinn. Til eru nokkrar sögur af sjódraugum sem gefa frá sér óhugnanleg hljóð,  æpa og góla. Talið var að af þeim stafaði mikil ógn.  Myndin er full af andstæðum þar sem ljós og litir eru ýktir og skuggaleg afturgangan á miðri myndinni er böðuð skæru ljósi sem skapar ískyggilega tilfinningu. Myndin er ævintýraleg og jafnvel ljóðræn, máluð í expressjónískum stíl þar sem þéttir pensildrættir skapa áhrifamikla stemningu og litirnir draumkennda dulúð. Myndefnið er ef til vill áminning um dauðann (og hverfulleika lífsins) sem var vinsælt myndefni í evrópskri myndlist fjórða áratugarins.

Einnig eru sögur um sjórekin lík nokkuð algengar í íslenskri sagnahefð. Sjórekin lík vísa til líkamsleifa sem hafa fundist í fjörum og á ströndum, oft tengd sögum um sjómenn sem höfðu drukknað. Fólki var ráðlagt að ganga ekki nálægt ströndum þar sem menn höfðu farist vegna ótta við að mæta sjódraug. Áður fyrr voru til reglur um hvernig ætti að bregðast við þegar gengið var fram á sjórekið lík. Allra mikilvægast var að ganga ekki fram hjá líkinu og skilja það eftir í fjörunni. Þótti ráðlegt að hlúa að líkinu og koma því í gröf sem fyrst svo að hinn dauði myndi ekki ásækja þann sem fann líkið. Varað var við að ræna líkið enda myndi það raska ró hins látna að eilífu og hann síðan ganga aftur sem sjódraugur og leita hefnda.

  • Ár1951 - 1952
  • GreinMálaralist / Olíumálverk
  • Stærð80 x 100.5 x 0 cm
  • EfnisinntakTungl, Sjór, Draugur
  • AðalskráMyndlist/Hönnun
  • UndirskráAðalskrá, Gjöf Finns Jónssonar og Guðnýjar Elísdóttur
  • EfniÓflokkað (í vinnslu) / Málning/Litur / Olíulitur, Lífræn efni / Textíll / Ýmis vefjarefni / Strigi
  • AðferðTækni/Málun
  • Merking gefandaGjöf listamannsins og Guðnýjar Elísdóttur konu hans 1985.
Höfundarréttur

Myndstef, Listasafn Íslands

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17