Álfadrottning er að beisla gandinn

1968 - 1970

Finnur Jónsson 1892-1993

LÍ-4463

Finnur Jónsson sótti sér meðal annars innblástur í þjóðsagnaarf Íslendinga og gerði fjölmörg listaverk sem tengjast vættum eins og draugum, tröllum, álfum og huldufólki.
Titill verksins Álfadrottning er að beisla gandinn er vísun í ljóð Gríms Thomsen (1820 1896). Kveðskapur Gríms naut mikilla vinsælda á Íslandi á 19. öld og hafa fjölmörg lög verið samin við ljóð hans, til að mynda ljóðið Á Sprengisandi sem kunnugt er flestum Íslendingum í dag.

Hér myndgerir Finnur ljóðlínuna með áhrifaríkum hætti þar sem fjólublár hestur með ljóst fax á miðri mynd reigir höfuðið aftur og virðist láta illa að stjórn. Í forgurnni er berfætt kona með sítt ljóst hár sem teygir hendurnar að höfði hestsins til þess að ná stjórn á honum. Líkamsstaða hennar er yfirveguð þar sem hún beygir hnén ofurlítið, tyllir tánni í jörðina og teygir sig í áttina að hestinum. Andlit hennar snýr að andliti hestsins og ljósa hárið bærist ekki á höfði hennar þrátt fyrir óstýrlæti hestsins. Litaval Finns ljáir verkinu yfirnáttúrulegan blæ og þunnur olíuliturinn skapar gegnsæja áferð í fölbleikum klæðum álfadrottningarinnar. Hesturinn er fjólublár og bakgrunnurinn ekki hefðbundið landslag heldur eru litirnir nýttir til þess að skapa stemminguna; gulir, grænir og rauðir litir mynda hringlaga form og skapa mikla hreyfingu á myndfletinum.
Svartar útlínur eru áberandi í verkinu en það stílbragð einkenndi þýskan expressjónisma sem hafði mikil áhrif á Finn og finna má í mörgum verka hans.

Þrátt fyrir glæsileika álfadrottningarinnar sem heillar við fyrstu sýn er allur varinn góður þegar kemur að samskiptum við slíka hulduveru, því eins og segir í næstu línu kvæðisins: ekki er gott að verða á hennar leið. 

  • Ár1968 - 1970
  • GreinMálaralist / Olíumálverk
  • Stærð145 x 110 x 0 cm Stærð með ramma: 147,2 x 112,5 x 0 cm
  • EfnisinntakDrottning, Þjóðsaga, Álfur, Hestur
  • AðalskráMyndlist/Hönnun
  • UndirskráAðalskrá, Gjöf Finns Jónssonar og Guðnýjar Elísdóttur
  • EfniLífræn efni / Textíll / Ýmis vefjarefni / Strigi, Óflokkað (í vinnslu) / Málning/Litur / Olíulitur
  • AðferðTækni/Málun
  • Merking gefandaGjöf listamannsins og Guðnýjar Elísdóttur konu hans 1985.
Höfundarréttur

Listasafn Íslands, Myndstef

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17