Tröllaborg

1944

Svavar Guðnason 1909-1988

LÍ-4893

Svavar Guðnason er þekktur fyrir kröftug og litrík abstraktmálverk þar sem línur, form og litasamspil er í fyrirrúmi. Sýning hans í Listamannaskálanum árið 1945 vakti mikla athygli, en þar sýndi hann abstrakt málverk sem hann hafði unnið á meðan hann bjó í Danmörku. Sýningin þótti djörf og framúrstefnuleg, í takt við hina nýju abstraktlist sem hafði rutt sér til rúms á meginlandinu á þessum tíma. Í abstraktlist leika myndbygging, litur og meðferð lita aðalhlutverk og hugmyndirnar sóttu listamenn í list barna og einnig í list framandi þjóða, sérstaklega grímur þeirra. Abstraktlistin var táknræn fyrir listþróun í nýjum heimi eftir hörmungar stríðsins. Abstrakt listaverkum var ekki ætlað að líkjast einhverjum fyrirmyndum heldur var lögð áhersla á ímyndunaraflið, óhefta tjáningu og frumkraft.

 Sumarið 1944 dvaldi Svavar í Roskildefirði í Danmörku þar sem er mikil náttúrufegurð. Þar málaði hann verkið Tröllaborg sem einkennist af kraftmiklum óreiðukenndum pensilstrokum og gulum, grænum og rauðum litatónum. Myndin er líklegast máluð hratt með breiðum strokum ofan í blautan lit og áferðin er hrjúf. Bogadregnar línur skapa hreyfingu þar sem tjáningarríkar pensilstrokur undirstrika óreiðu myndbyggingarinnar. Krafturinn í málverkum Svavars hefur oft verið tengdur við kraftinn í íslenskri náttúru.

Titillinn Tröllaborg vísar í íslenskt landslag og þjóðsögur. Þrátt fyrir að hvergi sjáist tröll á myndinni vekur titillinn upp hughrif um álfaborgir og tröllakirkjur sem leynast víða í íslenskum hraunbreiðum. Ef til vill táknar myndin heimkynni trölla og kraftinn í náttúrunni eða yfirnáttúrulegt andrúmsloftið sem einkennir sögur af tröllum. Vinstra megin á myndfletinum glittir í gróður eða dökkblátt tré og þar fyrir ofan er vísun í grímuformið sem oft má sjá í danskri abstraktlist.

  • Ár1944
  • GreinFlokkun LÍ / Abstraktmyndir, Málaralist / Olíumálverk
  • Stærð81 x 100 x 0 cm Stærð með ramma: 105,5 x 86,5 x 5 cm
  • EfnisinntakAbstrakt
  • AðalskráMyndlist/Hönnun
  • UndirskráAðalskrá
  • EfniLífræn efni / Textíll / Ýmis vefjarefni / Strigi, Óflokkað (í vinnslu) / Málning/Litur / Olíulitur
  • AðferðTækni/Málun
  • Merking gefandaGjöf Búnaðarbanka Íslands í minningu tveggja bankastjóra, Stefáns Hilmarssonar og Magnúsar Jónssonar, 1991.
  • Útgáfa / Sería1
Höfundarréttur

Myndstef, Svavar Guðnason-Erfingjar

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17