Bátur í Grindavík

1939

Gunnlaugur Scheving 1904-1972

LÍ-609

Gunnlaugur Scheving fæddist 1904 og varð einn þekktasti listmálari 20. aldar á Íslandi. Hann ólst upp á  Austurlandi og Seyðisfjörður var heimabær hans fram á fullorðinsár og líka um nokkurra ára skeið eftir að hann kom frá listnámi erlendis. Gunnlaugur hélt fyrstu myndlistarsýningu sína í Reykjavík 17 ára eftir tilsögn hjá Einari Jónssyni og Guðmundi Thorsteinssyni (Muggi). Á árunum 1923–1929 stundaði hann myndlistarnám í Kaupmannahöfn en flutti alkominn til Íslands 1930. Gunnlaugur aflaði sér viðfangsefna víða um land en á árunum 1939–1947 dvaldi hann langdvölum í Grindavík. Þar þróaði hann myndstíl sem skilaði sér m.a. í stórbrotnum myndum af sjómennsku. Hann hélt margar einkasýningar og tók þátt í samsýningum heima og heiman og var meðal annars annar af fulltrúum Íslands í Feneyjum árið 1972.

  • Year1939
  • TypeMálaralist - Olíumálverk
  • Size53 x 56 cm
  • SummaryAlda, Bátur, Fjall, Sjór
  • Main typeMyndlist/Hönnun
  • MaterialOlíulitur

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 - 17