Nafnlaus

1980

Svavar Guðnason 1909-1988

LÍ-6175

Svavar Guðnason ólst upp á Höfn í Hornafirði þar sem birtan er einstök vegna endurskins frá hafinu og jöklunum og hefur það vafalaust haft áhrif á næmi hans fyrir litum. Þótt Svavar væri skráður í nám við Konunglega listaháskólann í Kaupmannahöfn 1935, var hann að mestu sjálfmenntaður myndlistarmaður er tileinkaði sér óhlutbundna myndgerð og sjálfsprottna tjáningu en afneitaði þó aldrei náttúrunni og leit á hana sem mikinn áhrifavald. Árið 1945 hélt Svavar stóra einkasýningu á Íslandi og markaði sýningin tímamót í íslenskri myndlist og skapaði farveg fyrir óhlutbundna myndlist. Svavar tók virkan þátt í dönsku myndlistarlífi á fimmta áratugnum og fann samleið með framvarðarsveit danskrar myndlistar, listamönnum sem sóttu innblástur í list barna, frumþjóða og eigin menningararf, og sumir þeirra mynduðu seinna kjarnann í Cobra-hópnum. Sú sterka tilfinningalega tjáning sem birtist í verkum Svavars á árunum 1943–1949 skapar honum sérstöðu í íslenskri og alþjóðlegri myndlist. Verkin spruttu fram úr hugarfylgsnum listamannsins er hann stóð andspænis auðum striganum eins og um töfra væri að ræða.

  • Ár1980
  • GreinFlokkun LÍ / Abstraktmyndir, Málaralist / Olíumálverk
  • Stærð103.5 x 160.5 x 0 cm Stærð með ramma: 105 x 162 x 0 cm
  • EfnisinntakAbstrakt
  • AðalskráMyndlist/Hönnun
  • UndirskráAðalskrá
  • EfniLífræn efni / Viður / Unninn viður / Masonít, Óflokkað (í vinnslu) / Málning/Litur / Olíulitur
  • AðferðTækni/Málun
  • Merking gefandaGjöf frá Ástu Eiríksdóttur til Listasafns Íslands
  • Útgáfa / Sería1
Höfundarréttur

Myndstef, Svavar Guðnason-Erfingjar

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17