Frá Hornafirði

Freymóður Jóhannsson 1895-1973

LÍ-6290

Freymóður Jóhann Jóhannsson fékk ungur tilsögn hjá Stefáni Björnssyni teiknikennara á Akureyri en eftir gagnfræðipróf hélt hann til Kaupmannahafnar til frekara náms í teiknun og málaraiðn. Árið 1922 hélt Freymóður í námsferð til Ítalíu og sýndi afrakstur ferðarinnar á fyrstu einkasýningu sinni í Bárunni í Reykjavík haustið 1924. Árið 1927 hélt Freymóður enn á ný til Kaupmannahafnar þar sem hann lærði leiktjaldamálun við Konunglega leikhúsið og fékkst hann töluvert við leiktjaldamálun eftir það. Í gegnum tíðina málaði Freymóður marga merka Íslendinga og eru mannamyndir stór hluti verka hans. Hann málaði einnig íslenskt landslag og myndir ákveðinna bæja og staða eftir beiðni. Freymóður var einnig tónskáld og notaði höfundarnafnið 12. september.

 

  • GreinFlokkun LÍ / Landslagsmyndir, Málaralist / Olíumálverk
  • Stærð48 x 65 x 0 cm Stærð með ramma: 58,5 x 78,5 x 0 cm
  • EfnisinntakHúsdýr, Kind, Fjall, Hestur, Landslag, Jökull
  • AðalskráMyndlist/Hönnun
  • UndirskráAðalskrá
  • EfniÓflokkað (í vinnslu) / Málning/Litur / Olíulitur, Lífræn efni / Textíll / Ýmis vefjarefni / Strigi
  • AðferðTækni/Málun
Höfundarréttur

Freymóður Jóhann Jóhannsson-Erfingjar, Myndstef

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17