Konur að spila

1932

Karen Agnete Þórarinsson 1903-1992

LÍ-914

Karen Agnete Þórarinsson fæddist í Kaupmannahöfn og stundaði listnám í Danmörku frá 1926 – 1929, það sama ár kom Karen til Íslands og var búsett í Ásbyrgi í Norður-Þingeyjarsýslu til ársins 1938 en eftir það í Reykjavík. Karen var ein hinna mörgu dönsku kvenna sem fylgdu íslenskum eiginmönnum heim frá Kaupmannahöfn á fyrri hluta 20. aldar, eftir nám beggja við Konunglegu listaakademíuna. Eiginmaður Karenar var Sveinn Þórarinsson listmálari. Hún hreifst af landi og þjóð og næstu sex áratugina málaði hún og sýndi verk sín víða um land og varð virtur og vel þekktur málari. Þeir myndaflokkar sem hún sinnti hvað mest voru mannamyndir, náttúrustemningar og blóm og kyrralíf. Það var ekki fyrr en listakonan var á áttugasta og fyrsta aldursári að fyrsta einkasýning hennar á Íslandi var haldin í Gallerí Borg í Reykjavík árið 1984. Þar sýndi hún þrettán olíumálverk sem unnin voru á árunum 1980–1984. Engu að síður átti hún að baki sex áratuga listferil þegar hún lést og því er lífsverkið umtalsvert.

 

 

  • Ár1932
  • GreinMálaralist - Olíumálverk
  • Stærð71 x 115 cm
  • EfnisinntakKona, Spil
  • AðalskráMyndlist/Hönnun
  • EfniOlíulitur
  • Merking gefanda

    Úr safni Markúsar Ívarssonar.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 - 17