Völuspá

2017

Guðjón Ketilsson 1956-

Endursköpun sköpunarsögunnar, niðurbrot fundins texta og afbygging merkingar hans liggur til grundvallar myndröðinni Völuspá I-VIII & Ragnarök. Grafíkverkin eru níu talsins. Í átta verkum hefur listamaðurinn endurritað 63 erindi hins forna kvæðis í Konungsbók Eddukvæða sem hann teiknar upp í óreglulegt myndmál. Á níundu myndinni hafa öll erindin verið prentuð á eina örk; efnismassi upphlaðins bleksins geymir merkinguna en gerir hana um leið ólæsilega.

Völuspá, Guðjón Ketilsson, LÍ 9220,Trúarlegar myndir - Goðsagnamyndir - Norrænar
LÍ-9220-1
  • Ár2017
  • GreinGrafík - Ætingar
  • Stærð28 x 38 cm
  • EfnisinntakGoðafræði
  • AðalskráMyndlist/Hönnun
  • EfniPappír, Prentlitur

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 - 17