Upptaka
2019
Fritz Hendrik Berndsen 1993-

Fylgifiskar neyslusamfélags á tímum netverslunar og heimsendinga eru myndskeið á netinu sem sýna þegar umbúðir utan um eftirsóttar vörur eru opnaðar. Þetta fyrirbæri, sem hefur verið nefnt á ensku „unboxing“, vakti áhuga Fritz Hendriks sem gerði sína eigin útgáfu af framvindunni. Auk myndskeiðsins sem hér birtist sýndi hann öskjurnar, sem hann myndaði, á sérsniðnum hillum og málverk af einstökum augnablikum í ferlinu. Fritz Hendrik IV beinir ekki athyglinni að innihaldinu heldur umbúðunum, þ.e. öskjunum sem eru teknar í sundur eins og matrjósjka-dúkka, (stundum nefnd babúska), þar sem innihaldið er sífellt minna box. Í verkinu deilir hann upplifun með áhorfendum, fangar eftirvæntingu og ýtir undir forvitni.
Öskjur og innihald þeirra er vel þekkt stef í listasögunni til dæmis askja Pandóru í grískri goðafræði og box Flúxus-listamanna á síðari hluta 20. aldar. Með þessu verki tekur Fritz Hendrik IV hversdagslegt internetfyrirbæri á fyrri hluta 21. aldar og setur það fram á hátíðlegan og dularfullan máta sem minnir á eldri verk í listasögunni þar sem fjallað er um kassann sem afar merkingarþrunginn hlut.

