Nátttröll með blindrahund

2019

Matthías Rúnar Sigurðsson 1988-

LÍ-9299

Nátttröll hoggið í stein af listamanninum Matthíasi Rúnari Sigurðssyni mætir áhorfandanum alvarlegt á svip, með stóra hramma sem halda í ól blindrahunds. Líkamsstaða tröllsins gefur til kynna að það sitji á hælum sér þar sem glittir í stórskornar tærnar og tröllið virðist samanrekið. Andlit þess er grettið og á enninu sér móta fyrir hornum sem minna á djöfla. Eyrun eru oddmjó og á höndum tröllsins, sé horft á höggmyndina á hlið sjást beinaberir handleggir sem undirstrika tengingu þess við dauða og hrylling. Áhugavert er að velta fyrir sér þeirri ákvörðun að velja þjóðsöguna um nátttröllið til þess að höggva í stein, en örlög nátttröllsins eru mörgum kunnug; sólin breytti því í stein.

Nátttröll með blindrahund er höggmynd úr grágrýti þar sem hamar, meitill, þjalir, slípirokkur og fræsari koma við sögu. Matthías Rúnar hjó fyrst í stein á háalofti móður sinnar árið 2009 skömmu áður en hann hóf nám við Myndlistardeild Listaháskóla Íslands. Höggmyndagerð er ekki kennd sem fag í Listaháskóla Íslands, sem varð til þess að hann lærði sjálfur að höggva myndir  í stein. Listamaðurinn mótar hugmyndir sínar fyrst í teikningu áður en þær færast yfir í steininn, en hann teiknar einnig á steininn sjálfan til þess að fá tilfinningu fyrir forminu. Verk eftir Matthías Rúnar er að finna víða í mörgum listasöfnum landsins en einnig í almannarými og í einkaeigu.

Verk hans kallast á við þjóðsagnaverk eftir frumkvöðla íslenskrar myndlistar. Má þar til dæmis nefna myndhöggvarann Einar Jónsson og listmálarann Ásgrím Jónsson, en hinn síðarnefndi myndgerði söguna um nátttröllið í fjöldamörgum verkum sínum. Í áranna rás hafa nýjar kynslóðir listamanna fundið innblástur í verk sín í undraveröld íslenskra þjóðsagna. Í umræddu verki sameinast hinn forni heimur þjóðsagna og nútíminn, þar sem hundur hefur hlotið þjálfun til þess að leiðsegja blindu trölli.

  • Ár2019
  • GreinFlokkun LÍ / Þjóðsagnamyndir, Skúlptúr / Steinskúlptúrar
  • Stærð40 x 25 x 41 cm
  • EfnisinntakTröll, Hundur, Þjóðsaga
  • AðalskráMyndlist/Hönnun
  • UndirskráAðalskrá
  • EfniÓlífræn efni / Steinategund / Grágrýti, Ólífræn efni / Steinategund / Basalt
  • AðferðTækni/Steinsmíði/Steinhögg
Höfundarréttur

Myndstef, Matthías Rúnar Sigurðsson

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17