Óskasteinn III

1986

Björg Þorsteinsdóttir 1940-2019

LÍ-9568

Björg Þorsteinsdóttur stundaði nám í grafíklist við Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Hún fór í framhaldsnám til Þýskalands og Frakklands og síðar lagði hún stund á nám í málmgrafík og steinþrykki við hið þekkta grafíkverkstæði Atelier 17 í París. Björg tileinkaði sér bæði listmálun og grafíklist á níunda áratugnum þegar grafíklistin náði hvað mestri útbreiðslu á Íslandi. Í grafíkverkum sínum sótti hún yfirleitt fyrirmyndir í sitt nánasta umhverfi, oft í reynsluheim kvenna. Í grafíkmyndaröðinni Óskasteinar frá 1986 svífa strendingar rétt við yfirborðið. Kristallöguð formin minna á geimsteina, jafnvel loftsteina. Ef til vill eru þetta töfrasteinar sem innihalda óskir eða búa yfir sérstökum mætti eða göldrum.

Trú á mátt töfrasteina eða heillasteina er ævagömul á Íslandi. Ólíkar tegundir steina koma fyrir í íslenskri þjóðtrú og þjóðsögum. Má þar nefna galdrasteina, óskasteina, sögusteina, segulsteina, huliðshjálmssteina og lausnarsteina. Ekki er alltaf um raunverulega steina að ræða heldur koma þeir fyrir í sögum sem töfragripir sem líkjast steinum. Lausnarsteinar auðvelda konum fæðingu. Lífsteinar lífga þau sem eru dauðvona. Huliðshjálmssteinn gerir okkur ósýnileg. Sögusteinn segir okkur allt sem við viljum vita. Segulsteinn getur upplýst um þjófnað og fundiðþjófinn. Þau sem finna óskasteina fá óskir sínar uppfylltar.

Í þjóðsögum Jóns Árnasonar eru leiðbeiningar um hvernig eigi að leita að töfrasteinum. Það er best að gera á sérstökum galdratímum sem eru í kringum hátíðisdaga eins og Jónsmessu, jól og áramót eða á páskadagsmorgun við sólarupprás. Finni maður óskastein á að setja hann undir tungurótina og óska sér. Aðrar sögur segja að hann sé egg óskabjarnarins sem er margfætt sækvikindi, sem verður hart eins og steinn og svart á litinn þegar það þornar.

  • Ár1986
  • GreinGrafík / Ætingar, Grafík
  • Stærð69 x 49 x 0 cm Blað: 81,5x69
  • AðalskráMyndlist/Hönnun
  • UndirskráAðalskrá, Gjöf erfingja Bjargar Þorsteinsdóttur
  • EfniLífræn efni / Pappír, Óflokkað (í vinnslu) / Málning/Litur / Prentlitur
  • AðferðTækni/Þrykk/Djúpþrykk/Æting/Akvatinta, Tækni/Þrykk/Djúpþrykk/Æting
  • Merking gefandaGjöf frá erfingjum listakonunnar.
  • Útgáfa / Sería15 / 35
Höfundarréttur

Björg Þorsteinsdóttir - Erfingjar, Myndstef

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17