Dyrfjöll

1921

Jóhannes Kjarval 1885-1972

Sýningartexti
Texti á sýningunni Kjarval á Austurlandi / Kjarval in the East, Skaftfell listamiðstöð / Skaftfell Art Center, 17.6.-4.10. 2025: Í júní 1921 ferðaðist Kjarval til Borgarfjarðar eystri og málaði þar verkið Dyrfjöll. Myndin sýnir voldugt form Ytra-Dyrfjalls, eða Dyrfjallstinds bera við himin og gæti sjónarhornið verið frá Álfaborg eða þar í grennd. Verkið einkennist af kröftugri formteikningu og einföldun myndmáls, eða eins og sagt var um verkið í Vísi 27. október 1921 þegar það var sýnt í Reykjavík: „Það er hrikalega einföld mynd. Hún er íslenskust allra mynda. Hamrabeltin eru teiknuð með þúsundum strika með svo mikilli leikni að hvergi verður bent á að eitt strik megi betur fara. Litirnir eru fáir, blái himinninn, hvítar fannirnar, svartir hamrarnir og brún moldarbörð næst manni. Það býr traust og tign í þessum tindi.“ Á sýningu á Austfirðingamóti á Seyðisfirði í ágúst höfðu landslagsmyndir Kjarvals einnig vakið hrifningu: „Var sem arnsúgur í þeim sumum og tign sú sem einkennir hér náttúruna. En ekki hafði málarinn síst náð í myndirnar dularöflum þeim er sýna oss veruleikann margfalt göfugri og helgari en vér fáum skynjað án listarinnar.“ (Austurland, 13. ágúst 1921) Jákvæðar umsagnir og góð sala verka höfðu hvetjandi áhrif á listamanninn og má því segja að ferðin austur hafi skipt miklu máli á ferli Kjarvals. -- In June 1921, Kjarval traveled to Borgarfjörður eystri and painted the work Dyrfjöll there. The painting depicts the mighty form of the peak of Ytra-Dyrfjall rising against the sky, the viewpoint most likely from the Elfin Rock or nearby. The work is characterized by vigorous form drawing and simplification of imagery, or as it was said about the work in the newspaper Vísir on October 27, 1921, when it was exhibited in Reykjavík: “It is an incredibly simple image. It is the most Icelandic of all pictures. The cliffs are drawn with thousands of strokes with such skill that nowhere can be pointed out that a stroke could be done better. The colours are few, the blue sky, the white snowdrifts, the black cliffs, and the brown dirt banks in the foreground. There is solidity and majesty in this peak.” At an exhibition at the East Icelandic Assembly in Seyðisfjörður in August, Kjarval’s landscape paintings had also garnered admiration: “It was like an eagle’s wings beating in some of them, with the grandeur of local nature. But not least, the painter captured the mystic forces that reveal to us a reality so much more noble and sacred than we can perceive without art.” (Austurland, August 13, 1921) Positive reviews and good sales of works had an encouraging impact on the artist, and it can thus be said that the trip east was very significant in Kjaval’s career.
LÍ-ÞGIG-439/30814
  • Ár1921
  • GreinMálaralist
  • StærðStærð með ramma: 100 x 110 x 0 cm
  • AðalskráMyndlist/Hönnun
  • UndirskráAðalskrá, Listaverkasjóður Þorvaldar Guðmundssonar og Ingibjargar Guðmundsdóttur
  • EfniÓflokkað (í vinnslu) / Vökvi / Olía, Lífræn efni / Textíll / Ýmis vefjarefni / Strigi
  • AðferðTækni/Málun
Höfundarréttur

Myndstef, Jóhannes Kjarval-Erfingjar

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17