"Fljúgðu, fljúgðu klæði"

1912 - 1915

Ásgrímur Jónsson 1876-1958

LÍÁJ-207/94

Ásgrímur Jónsson var frumkvöðull í íslenskri málaralist og meðal þeirra fyrstu sem gátu helgað sig myndlist og starfað við fagið á Íslandi í upphafi 20. aldar. Hann var annálaður listmálari með ótrúlega næmni fyrir birtu íslenskrar náttúru sem hann miðlaði með bæði málverkum og vatnslitamyndum. Ásgrímur ólst upp við frásagnir af vættum, álfum, draugum og tröllum og urðu þjóðsögurnar honum hugleiknar frá blautu barnsbeini fram á fullorðinsár. Þær voru honum innblástur í listsköpun  og gerði hann fjölda þjóðsagnaverka á starfsævinni: teikningar, vatnslitamyndir og málverk. Ásgrímur var meðal þeirra fyrstu, ef ekki fyrstur, til að myndgera íslenskar þjóðsögur. Þjóðsagnamyndir hans fengu mikla útbreiðslu í upphafi 20. aldar með útgáfu bókarinnar Lesbók fyrir börn og unglinga sem var prýdd myndum eftir Ásgrím og fengu margir þar fyrstu kynni af slíkum myndheimi.

Verkið Fljúgðu, fljúgðu klæði vísar til sögunnar Una álfkona. Í draumkenndu og um leið dularfullu landslagi sér áhorfandinn álfkonu svífa um á rauðbrúnu klæði þar sem förinni er heitið í álfheima. Sveiflurnar í klæðinu skapa hreyfingu og töfra meðan álfkonan klýfur loftið og snýr baki í áhorfandann. Hún svífur yfir hrjóstrugt landslag í átt að fannhvítum tindum með vísan í göfuga og hreina náttúru þar sem heimkynni álfanna eru, hulin mannfólkinu. Álfkonan er klædd vönduðum og litríkum klæðnaði með höfuðfat sem minnir á skautfald sem vísar til hátíðarklæðnaðar fyrri alda, enda er hún á leið í veislu.

Í verkinu miðlar Ásgrímur hápunkti sögunnar, þar sem áhorfandinn er hrifinn með og
spennan yfir hinu óvænta er alltumlykjandi. Verkið birtist áhorfandanum eins og úr sjónauka eða auga sem er um það bil að lokast, en þá stemningu nær Ásgrímur að kalla fram með því að lýsa fjöllin í fjarska og dekkja hliðarnar á myndfletinum sem þrengja að myndefninu. Þannig líður áhorfanda eins og hann standi á gægjum – eins og óboðni farþeginn á klæði álfkonunnar.

  • Ár1912 - 1915
  • GreinFlokkun LÍ / Þjóðsagnamyndir, Málaralist / Olíumálverk
  • Stærð65 x 95 x 0 cm Stærð með ramma: 80,5 x 110 x 0 cm
  • AðalskráMyndlist/Hönnun
  • UndirskráAðalskrá, Safn Ásgríms Jónssonar
  • EfniÓflokkað (í vinnslu) / Málning/Litur / Olíulitur
  • AðferðTækni/Málun
  • Merking gefandaGjöf frá listamanninum.
Höfundarréttur

Listasafn Íslands, Myndstef

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17