Halló, geimur

Samsýning

5.2.2021 — 9.1.2022

Listasafnið

Fjarlægar víðáttur í óendanlegum alheiminum hafa frá upphafi verið manninum hugleiknar og í aldanna rás hafa listamenn túlkað og tekist á við hugmyndir sínar um geiminn og miðlað þeim með fjölbreyttum hætti.

Salur

3

&

4

5.2.2021 9.1.2022

Sýningarstjórar

Guðrún Jóna Halldórsdóttir

Ragnheiður Vignisdóttir

Textar

Rakel Pétursdóttir

Ragnheiður Vignisdóttir

Forvarsla

Ólafur Ingi Jónsson

Nathalie Jacqueminet

Vísindalegar staðreyndir

Sævar Helgi Bragason

Framúrstefnuleg verk Finns Jónssonar, sem fyrstur Íslendinga tókst á við geiminn í verkum sínum á fyrri hluta 20. aldar, miðla óheftri tjáningu listamannsins á töfrum himintunglanna sem eru leiðarstef sýningarinnar. Leyndardómar Vetrarbrautarinnar sem aldnir spámenn afhjúpa með forsögnum sínum um veðurfar og forlög manna eru Hildigunni Birgisdóttur og Svavari Guðnasyni innblástur.

Finnur Jónsson, Óður til mánans

Finnur Jónsson 1892-1993

Óður til mánans, 1925

LÍ-4785

Málþing

Í verkum Ásgríms Jónssonar og Guðmundar Thorsteinssonar (Muggs) frá fyrri hluta 20. aldar sjáum við hvernig himintunglin tengjast þjóðtrú og ævintýrum þar sem vættir birtast mannfólki í tunglsljósi og blessuð sólin breytir tröllum í stein þegar dagur rís.

Geimurinn og listin eiga það sameiginlegt að vera forvitnileg og kvik, þar er stöðug hreyfing og alltaf er maður að uppgötva eitthvað nýtt þegar maður skoðar listaverk. Með hjálp Tuma, aðalpersónu bókarinnar Rauði hatturinn og krummi eftir Ásgerði Búadóttur myndlistarmann, geta yngstu gestir safnsins skoðað sýninguna á aðgengilegan hátt, sett upp gleraugu vísindamannsins og numið nýjan fróðleik!

Málþing - Halló, geimur

Norðurljósabar Halldórs Ásgeirssonar leiftrar með litadýrð og innsetning Steinu Vasulka Of the North hrífur áhorfandann með sér í áhrifamikilli upplifun.

Á sýningunni eru einnig mörg verk frá 7. og 8. áratug 20. aldar þegar framfarir í geimvísindum voru stórstígar og maðurinn fór í fyrsta sinn út fyrir gufuhvolf jarðar.

Geimurinn og listin eiga það sameiginlegt að vera forvitnileg og kvik, þar er stöðug hreyfing og alltaf er maður að uppgötva eitthvað nýtt þegar maður skoðar listaverk.

Halló, geimur

Listamenn sem eiga verk á sýningunni:

Ásgrímur Jónsson
Björg Þorsteinsdóttir
Erró
Eyborg Guðmundsdóttir
Finnur Jónsson 
Guðmunda Andrésdóttir
Guðmundur Thorsteinsson (Muggur)
Halldór Ásgeirsson
Helgi Þorgils Friðjónsson
Hildigunnur Birgisdóttir
Hildur Hákonardóttir
Hreinn Friðfinnsson
Jóhann Eyfells
Jón Gunnar Árnason
Keith Grant
Kristinn E. Hrafnsson
Margrét Elíasdóttir
Sigurjón Ólafsson
Steina
Svavar Guðnason
Sverrir Haraldsson
Vilhjálmur Bergsson
Þorvaldur Skúlason

5.2.2021 — 9.1.2022

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 — 17, lokað á mánudögum yfir vetrartímann (1.10 — 30.4)