Ísland úr fjarska

16.5.2026 — 4.10.2026

Safnasafnið

Árið 1928 fékk Listasafn Íslands að gjöf 24 landslagsmálverk, líklega frá 18. öld eftir óþekktan höfund. Öll bera þau áletrun sem tengir myndefnið við Ísland, til dæmis Eyjafjallajökull og Almannagjá, þó er ljóst að listamaðurinn hefur varla komið til Íslands því fátt minnir á íslenska náttúru í þessum verkum. Í samstarfi við Safnasafnið er ætlunin að varpa ljósi á þessi fágætu og framandi málverk og grennslast fyrir um uppruna þeirra, sögu, ástand og myndefni.

Safnasafnið

16.5.2026 4.10.2026

Sýningastjórar

Dagný Heiðdal, Nathalie Jacqueminet og Steinunn Harðardóttir

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17