Listþræðir

Samsýning

12.9.2020 — 24.1.2021

Listasafnið
LÍ 3841, Skarðatungl, Ásgerður Búadóttir, Myndvefnaður, Textíllist,

Á aldarafmæli Ásgerðar Búadóttur gefst tilefni til að horfa sérstaklega til vefnaðar og þráðlistar í íslenskri samtímalist og þess hvernig listamenn hafa notað þráðinn, þennan fjölbreytta efnivið; spunnið hann, litað, ofið og formað eftir öllum kúnstarinnar reglum.

Salur

3

&

4

12.9.2020 24.1.2021

Sýningarstjórar

Dagný Heiðdal

Harpa Þórsdóttir

Textar

Dagný Heiðdal

Harpa Þórsdóttir

Rakel Pétursdóttur

Forvarsla

Ólafur Ingi Jónsson

Nathalie Jacqueminet

Þórdís Anna Baldursdóttir

Verkefnastjóri sýninga

Júlía Marinósdóttir

Vefnaður, blönduð tækni úr mannshárum og gervihárum. Fléttur og slétt hár í brúnum tónum. Ljós, dökk og súkkulaði brúnir tónar.

Hrafnhildur Arnardóttir-Shoplifter 1969-

Right Brain, 2003-2005

LÍ-11479

Textíllistin er yfirgripsmikil listgrein með langa sögu og fjölda skilgreindra aðferða sem krefjast einatt mikillar kunnáttu og færni.  Í dag ríkir mikil gróska í þráðlistinni, bæði hér á landi og erlendis, og hafa yngri kynslóðir listamanna sýnt þræðinum sem efniviði mikinn áhuga. Endurspeglast það meðal annars í því hvernig mörk listgreina hafa máðst út á síðustu áratugum. Í verkum margra samtímalistamanna má einnig greina  tilraunakenndar leiðir og uppbrot á viðteknum aðferðum textíllistar sem sýnir okkur hvernig rótgróin listsköpun getur öðlast nýja vídd.

Klassísk landslagsmynd, láréttar línur, lóðréttar og skálínur spila fallega saman. Verkið er myndvefnaður úr ull, í brúnum og grábláum tónum.

Hildur Hákonardóttir 1938-

Fjall, 1982

LÍ-9050

Í safneign Listasafns Íslands er nokkur fjöldi listaverka þar sem unnið er með þráð sem efnivið með margvíslegum hætti. Við val á verkum fyrir sýninguna var einnig leitað í safneignir annarra listasafna og í einkasöfn. Listaverkin á sýningunni endurspegla ólíkar aðferðir listamanna, þráðinn í sinni hefðbundnu mynd innan rótgróinna aðferða sem og óvæntar og nýstárlegri útfærslur þar sem þráðurinn gegnir aðalhlutverki.

Textíllistin er yfirgripsmikil listgrein með langa sögu og fjölda skilgreindra aðferða sem krefjast einatt mikillar kunnáttu og færni. 

Listþræðir

Listamenn

Anna Líndal
Anna Þóra Karlsdóttir
Arna Óttarsdóttir
Auður Vésteinsdóttir
Ása Ólafsdóttir
Ásgerður Búadóttir
G. Erla – Guðrún Erla Geirsdóttir
Guðrún Gunnarsdóttir
Guðrún Marinósdóttir
Hildur Ásgeirsdóttir Jónsson
Hildur Bjarnadóttir
Hildur Hákonardóttir
Hólmfríður Árnadóttir
Hrafnhildur Arnardóttir – Shoplifter
Hrafnhildur Sigurðardóttir
Ingibjörg Styrgerður Haraldsdóttir
Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir
Ívar Valgarðsson
Jonna – Jónborg Sigurðardóttir
Kristinn G. Harðarson
Kristín Gunnlaugsdóttir
Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá
Lilý Erla Adamsdóttir
Loji Höskuldsson
Nína Gautadóttir
Oddný E. Magnúsdóttir
Ólöf Einarsdóttir
Pétur Magnússon
Ragna Róbertsdóttir
Ragnheiður Björk Þórsdóttir
Rósa Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Sverrisdóttir
Sigurlaug Jóhannesdóttir
Vigdís Kristjánsdóttir
Þorbjörg Þórðardóttir
Þór Vigfússon
Þórdís Alda Sigurðardóttir

Á myndinni er teiknuð mynd af Muggi og Kristínu Jónsdóttur vinkonu Muggs. Veggspjaldið var gert fyrir samsýningu þeirra  og er talið eitt af fyrstu veggspjöldum landsins.

2.10.2021 — 14.2.2022

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 — 17, lokað á mánudögum yfir vetrartímann (1.10 — 30.4)