Samspil - Sigurjón Ólafsson og Finn Juhl

Hugarflug milli höggmyndar og hönnunar

23.4.2015 — 20.9.2015

Ljósmynd af húsgögnum eftir Finn Juhl og listaverk eftir Siigurjón Ólafsson

23.4.2015 20.9.2015

Sýningarstjórar

Æsa Sigurjónsdóttir og Birgitta Spur

Samspil varpar nýju ljósi á tengsl danska arkitektsins Finns Juhl (1912-1989) og Sigurjóns Ólafssonar (1908-1982) á árunum 1939 til 1945. Þeir voru báðir brautryðjendur, hvor á sínu sviði, og fóru ótroðnar slóðir í tilraunum sínum með form og efni.

Á sýningunni eru meðal annars stóllinn Pelikanen og sófinn Poeten, ásamt verkum eftir Sigurjón sem Finn Juhl valdi í samleik við húsgögn sín á sýningu Snedkerlaugets  í Kaupmannahöfn og á heimili sínu Kratvænget 15, Charlottenlund, sem nú er orðið að safni í eigu danska ríkisins.  Á síðari árum hafa verk Finns Juhl notið mikilla vinsælda um víða veröld, meðal annars fyrir tilstuðlan danska fyrirtækisins Onecollection, sem hefur einkaleyfi á að framleiða húsgögn hönnuð af Finn Juhl. 

Dönsku húsgagnaframleiðendurnir Onecollection og Epal styrkja sýninguna.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 — 17, lokað á mánudögum yfir vetrartímann (1.10 — 30.4)