Gyðjur
Sigurjón Ólafsson
5.2.2016 — 28.8.2016
![Mynd af skúlptúr eftir Sigurjón Ólafsson,](/_next/image/?url=https%3A%2F%2Fimages.prismic.io%2Flistasafn-islands%2F331c0fb5-337f-4663-91c4-b52c85c78a65_013-Kona-ur-badi-gj_minni%2BSigurj%25C3%25B3n%2B%25C3%2593lafsson.jpg%3Fauto%3Dcompress%2Cformat&w=3840&q=100)
Í tilefni þess að 100 ár eru liðin frá því að konur fengu kosningarétt á Íslandi setur Listasafn Sigurjóns Ólafssonar upp sýningu á klassískum portrettum af konum í túlkun Sigurjóns ásamt öðrum verkum hans, sem höggvin eru í stein eða tré þar sem kvenímyndinni – Das Ewig-Weibliche – er lýst og tekur á sig ímynd gyðjunnar.
Sigurjón Ólafsson (1908–1982) er meðal þekktustu portrettlistamanna Norðurlanda og eftir hann liggja rúmlega 200 andlitsmyndir. Flestar eru þær af karlmönnum í ábyrgðarstöðum í þjóðfélaginu, en kvenportrett Sigurjóns eru síður þekkt, að undanskilinni myndinni sem hann gerði af móður sinni, Guðrúnu Gísladóttur, árið 1938. Fyrir þá mynd hlaut Sigurjón hin eftirsóttu dönsku Eckersberg-verðlaun árið 1939. Ríkislistasöfn þriggja Norðurlanda eiga eintök af þeirri mynd.
![Málverk eftir Ásgrím Jónsson frá 1915. Verkið heitir Múlakot í Fljótshlíð og sýnir konu við hús og landslag í kring.](/_next/image/?url=https%3A%2F%2Fimages.prismic.io%2Flistasafn-islands%2F9b9b9e03-177c-416b-94c7-ba900627dc9e_LI_0095%2BM%25C3%25BAlakot%2B%25C3%25AD%2BFlj%25C3%25B3tshl%25C3%25AD%25C3%25B0-%25C3%2581sgr%25C3%25ADmur%2BJ%25C3%25B3nsson.jpg%3Fauto%3Dcompress%2Cformat&w=3840&q=100)