Þar sem ljósið lifir

Höfundur ókunnur
Hin dýrlega guðsmóðir hodegetria frá Volyn, fyrri hluti 14. aldar
Kirkja verndarhátíðar heilagrar guðsmóður í Lútsk í Volyn‑héraði í Úkraínu
Tempera á striga með gifsgrunni, sem límdur er á lindiviðarplötu með lækkuðum myndfleti; platan er samsett úr tveim fjölum; gylling
Safneign Listasafns Úkraínu, И−414
Verkið guðsmóðirin hodegetria ber vott um fágaða verkkunnáttu og djúpan skilning málarans á guðfræðilegum álitamálum. Hodegetria er grískt orð og merkir „sú sem vísar veginn“. Ljóst má vera að verkið var gert á vinnustofu sem sérhæfði sig í gerð helgimynda. Það sýnir hve öflug þessi málarahefð var. Rætur hennar lágu í þeirri grein býsanskrar listar sem þróaðist í Kænugarði á 11. öld og lifði af þá miklu eyðileggingu sem fylgdi innrásum Mongóla frá síðari hluta 13. aldar fram á miðja 14. öld.
Tign og alvara einkenna þessa mynd af Maríu. Hún ber dökka höfuðslæðu (gr. maphorion), hallar höfðinu að Jesúbarninu og beinir hægri hendinni að því. Sorgmædd augu hennar mæta augnaráði áhorfandans. Jesúbarnið klæðist kyrtli með ljósu mynstri en er jafnframt sveipað skærri, sinnóberrauðri yfirskikkju. Í geislabaugi barnsins er skærrauður kross sem táknar fyrirheitið um hjálpræði trúarinnar. Gylltu stjörnurnar fjórar sem skreyta slæðu Maríu auðga enn hið guðfræðilega myndmál verksins. Þær boða píslargönguna sem beið Jesúbarnsins á fullorðinsárum. Mittislindi Jesúbarnsins undirstrikar hlutverk Krists sem æðsta prests hjálpræðisins.
Hesýkasmi (gr. hesychasmos) er iðkun innan rétttrúnaðarkirkjunnar sem miðar að innri kyrrð og djúpri bæn. Á þessum tíma setti þessi hefð svip sinn á guðfræði, klausturlíf og myndlist á áhrifasvæði Býsansríkisins. Í myndmáli verksins birtist hefðin í sterkum andstæðum milli djúpra, kaldra skugga grunnlitarins og bjartari, hlýrri okkurgulra litaflata sem móta andlitsdrættina. Með sinnóberrauðum lit dregur málarinn útlínur augna og nefs og markar skugga á andliti og hálsi. Þar mótar fyrir fornri aðferð sem áður hafði birst í mósaíkmyndum frá 11. öld í dómkirkju heilagrar Soffíu í Kænugarði.

Höfundur ókunnur
Postularnir Pétur og Páll, undir lok 15. aldar
Þorpið Malnív í Mostyska umdæmi í Lvív héraði í Úkraínu
Tempera á striga með gifsgrunni, sem límdur er á lindiviðarplötu með lækkuðum myndfleti
Safneign Listasafns Úkraínu, И—2
Verkið sýnir postulana Pétur og Pál eina saman en þeir tveir hafa verið kallaðir máttarstólpar kirkjunnar. Slík framsetning er sjaldgæf í úkraínskri helgimyndalist og stíll verksins er einnig óvenjulegur. Flöt framsetning, hreinar línur og stílfærð form gefa verkinu agað yfirbragð.
Þótt litavalið sé hófstillt tekst málaranum að skapa afar samræmda heild. Þessu samræmi nær hann meðal annars með því að draga úr hefðbundnum útlitsmun postulanna. Hárgreiðsla þeirra og háralitur eru til að mynda nánast eins. Háraliturinn á sér samsvörun í terrakotta tónum skikkjunnar og línunum sem marka fellingar klæðanna. Blái liturinn í kyrtlum postulanna kallast á við hinn óvenjulega bláa lit bakgrunnsins.
Krossinn á yfirskikkju Péturs postula táknar forystuhlutverk hans við stofnun kirkjunnar og kann einnig að vísa til biskupstignar hans. Bókrollurnar tvær sem svífa í lausu lofti milli postulanna og bera áletrunina „Postullegar bókrollur“ eru einnig eftirtektarverðar. Stíll helgimyndarinnar minnir um margt á rómanska list. Hið knappa formmál ljær verkinu alvörugefinn blæ.

Höfundur ókunnur
Hið heilaga klæði frá Edessu (gr. mandylion), síðasti fjórðungur 16. aldar
Boryslav í Lvív‑héraði í Úkraínu
Tempera á lindiviðarplötu með gifsgrunni, sem samsett er úr tveim fjölum, með lækkaðan myndflöt og tvo innfellda þverlista; upphleypt gifsskraut og silfrun
Safneign Listasafns Úkraínu, И−462
Myndefnið er sótt í forna sögn um Abgar konung í borginni Edessu í Mesópótamíu. Hann trúði því að mynd af Jesú gæti læknað mein sitt. Sagan segir að Abgar hafi sent þjón sinn til Palestínu til að mála mynd af Kristi en þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir tókst þjóninum það ekki. Kristur lagði þá klæði að andliti sér og fyrir kraftaverk birtist ásjóna hans á því. Þessi „mynd sem ekki var gerð af manna höndum“ læknaði Abgar konung og var varðveitt í Edessu öldum saman. Árið 944 var klæðið flutt til höfuðborgar Býsansríkisins, Konstantínópel, sem í norrænum heimildum var jafnan nefnd Miklagarður. Þar var stofnað til hátíðar því til heiðurs og tilbeiðsla helgigripsins breiddist út í framhaldi af því.
Verkið var upphaflega hluti af helgimyndahliði, eða íkonóstas. Helgimyndahlið er veggur eða skilrúm þakið íkonum, sem skilur altarið frá kirkjuskipinu í rétttrúnaðarkirkjum. Slík hlið höfðu lykilhlutverk í úkraínskum kirkjum. Verkin mynduðu samfellda heild og röð þeirra og niðurskipan endurspeglaði ákveðið guðfræðilegt kerfi. Uppruna helgimyndahliðsins má rekja til tíma Garðaríkis og fyrstu steinkirknanna sem reistar voru í Kænugarði á 10. og 11. öld. Í Úkraínu tók helgimyndahliðið á sig sérstakt form og öðlaðist með tímanum séreinkenni sem greindu það frá helgimyndahliðum annarra þjóða rétttrúnaðarkirkjunnar.
Eitt þessara sérkenna var að helgimynd af klæðinu frá Edessu, sem kölluð var mandylion, var höfð yfir konungshliðinu en það er stærsta dyraopið af þeim þremur sem eru á hefðbundnu helgimyndahliði. Sú staðsetning réð því að verkið fékk ílangt, lárétt form sem tók mið af breidd dyraopsins fyrir neðan. Helgimyndir af þessari gerð og með þessu lagi eru þekktar frá 14. og fram á 18. öld. Á helgimyndinni frá Boryslav sjáum við annað sérkenni úkraínskra verka af þessu tagi: englar halda klæðinu á lofti og strekkja það sín á milli, svo myndin af ásjónu Krists sem birtist á klæðinu fyrir kraftaverk blasir við.

Höfundur ókunnur
Skírnin, um miðja 16. öld
Úr óþekktri kirkju nærri Kalúsj í Ívano Frankívsk héraði í Úkraínu
Tempera á lindiviðarplötu með gifsgrunni, sem samsett er úr tveim fjölum og er með tveimur innfelldum þverlistum; upphleypt gifsskraut og silfrun
Safneign Listasafns Úkraínu, И−4
Helgimyndin ber þess vitni að býsönsk myndhefð hélt velli þótt tyrkneskir Ottómanar hefðu lagt Konstantínópel, höfuðborg Býsansríkisins, undir sig árið 1453 og höggvið þannig að rótum býsanskrar menningar. Fræðimenn kalla þetta fyrirbæri „Býsans eftir Býsans“ og líkja því við ljós dauðrar stjörnu sem hafi í nærri heila öld haldið áfram að lýsa og næra listsköpun þeirra þjóða þar sem rétttrúnaðarkirkjan var ríkjandi.
Fyrir miðju verksins stendur Kristur í ánni Jórdan. Jóhannes skírari, sem ruddi Kristi braut, skírir hann. Hinum megin árinnar standa þrír englar. Blár geisli brýst fram af himnum ofan og í honum greinum við hvíta dúfu, tákn heilags anda. Áin Jórdan er sýnd sem lóðréttur blár flötur, eins og venja var innan þessarar listhefðar.
Fjöllin eru sömuleiðis stílfærð. Þau eru máluð í okkurgulum lit og byggð upp úr sléttum flötum sem ójarðnesk birta leikur um. Fjölmargir litríkir borðar fléttast um fjallstindana og setja á verkið sérstakan svip. Hinir helgu menn eru stórir og svipmiklir og fylla nær alveg upp í myndflötinn. Hreinir og skýrt afmarkaðir litafletir tengja þá saman í óvenju samræmda heild. Lendaklæði Krists (gr. perizoma) sem vafið er um mitti hans, er skreytt fínlegu mynstri. Á rauða rammanum utan um myndina sjást stjörnur og glampar leika um silfraða geislabauga engla og dýrlinga.

Höfundur ókunnur
Jesús færður í musterið, fyrri hluti 16. aldar
Kirkja heilags Símeons sem tók Jesúbarnið í fang sér, í þorpinu Zvertív í Zjovkva umdæmi í Lvív héraði í Úkraínu
Tempera á lindiviðarplötu með gifsgrunni, sem samsett er úr tveim fjölum og hefur lækkaðan myndflöt og gróp fyrir einn þverlista; upphleypt gifsskraut á jöðrunum og silfrun
Safneign Listasafns Úkraínu, И−397
Á helgimyndinni sjáum við Maríu og Jósef færa Jesúbarnið í musterið þar sem öldungurinn Símeon og Anna spákona taka á móti því. Framsetning myndefnisins fylgir býsanskri hefð eins og hún þróaðist í Kænugarði. Málverkið er fágað og litavalið samræmt. Byggingarnar í bakgrunni eru stílfærðar og málaðar í mildum pastellitum. Þær draga þó ekki athyglina frá persónunum í forgrunni heldur mynda með þeim samræmda heild. Símeon er umlukinn hvítum og rauðum bjarma hins guðlega ljóss Krists.
Bakgrunnurinn vekur sérstaka athygli. Þar hefur listamaðurinn nostrað við múrhleðslu sem gerð er úr framstæðum og píramídalaga steinum. Slík útfærsla var vinsæl í byggingarlist endurreisnarinnar á 15. og 16. öld. Hér flytur listamaðurinn því stílbragð úr byggingarlist samtíma síns inn í hið helga og stílfærða rými verksins.
Að grafa flúr á jaðar myndflatarins varð eitt af einkennum úkraínskra helgimynda á 16. öld. Í skrautinu á þessu verki sjást áhrif endurreisnarinnar skýrt: í stað hefðbundins býsansks fléttumynsturs sjáum við renninga með stílfærðum akantusblöðum. Í hornunum eru skýrt afmarkaðir ferningar, prýddir rósettum með blómamynstri.

Höfundur ókunnur
Heilagur Georg, fimmti áratugur 18. aldar
Uppstigningarkirkjan í Berezna í Tsjerníhív héraði í Úkraínu
Olía og tempera á lindiviðarplötu með gifsgrunni, sem samsett er úr tveim fjölum, með tveimur innfelldum þverlistum; upphleypt skraut mótað úr gifsi og gylling
Safneign Listasafns Úkraínu, И−201
Landslagsmálverkið var ekki sjálfstæð grein innan úkraínskrar málaralistar á barokktímanum. Landslagið fékk þó æ meira vægi í rýmisbyggingu helgimynda og auðgaði þannig trúarlega list. Það varð þannig eitt af einkennum úkraínskrar helgimyndalistar að tvinna ímyndað landslag saman við gylltan, upphleyptan grunn sem táknaði hinn æðri, guðlega heim.
Heilagur Georg fyllir upp í myndflötinn, stór og tignarlegur. Hann er klæddur í ríkmannlega brynju og síða skikkju úr hermelínskinni (vetrarfeldi hreysikattar) og birtist okkur sem fágaður hirðriddari. Andlit hans er fínlegt og geislar af andakt þar sem hann starir út í fjarskann. Að baki hans breiðir mannlaust og ljóðrænt landslag úr sér, málað í köldum litatónum. Úr verður mikilfengleg og upphafin mynd af helgum stríðsmanni.
Verkið var upphaflega í neðstu röð stórs helgimyndahliðs í merkri timburkirkju í Berezna í Tsjerníhív héraði sem helguð var uppstigningu Krists. Byggingarmeistarinn Opanas Sjelúdko reisti kirkjuna á árunum 1759–1761. Hún bar fimm há hvolfþök og reis 30 metra í loft upp. Í hvolfþökunum voru gluggar sem gerðu kirkjurýmið óvenju opið og fylltu það birtu. Á Sovéttímanum var kirkjan eyðilögð og helgimyndahliðið sömuleiðis. Sumarið 1936, skömmu áður en það gerðist, tókst list og safnfræðingnum Pavlo Zjoltovskyj (1904–1986) að bjarga nokkrum myndum úr helgimyndahliðinu, þar á meðal þessu verki.

Höfundur ókunnur
Heilagur Nikulás, 1642
Dómkirkja heilagrar Soffíu í Kænugarði í Úkraínu
Tempera á lindiviðarplötu með gifsgrunni, sem samsett er úr tveim fjölum, með tveimur innfelldum þverlistum; skraut grafið í gifsgrunninn og gylling
Safneign Listasafns Úkraínu, И−78
Heilagur Nikulás hefur lengi verið meðal þeirra dýrlinga sem hve mest eru í hávegum hafðir í Úkraínu. Fleiri helgimyndir af honum hafa varðveist en af flestum öðrum dýrlingum þar í landi. Slík íkon var enda að finna í svo til hverri úkraínskri kirkju.
Í Kænugarði nær tilbeiðsla dýrlingsins aftur til 11. aldar. Þá var Nikulásarklaustur stofnað við bakka Dnépr fljóts, á þeim stað sem nefndur er Gröf Askolds. Samkvæmt arfsögn hvílir þar Askold, hinn þjóðsagnakenndi höfðingi Garðaríkis (úkr. Rus’). Hann er talinn til fyrstu væringjahöfðingja Garðaríkis en væringjar voru norrænir menn, einkum sænskir, sem létu til sín taka á þessu svæði á víkingatímanum. Nafnið Askold er talið vera umritun á nafninu Höskuldur.
Dómkirkja heilagrar Soffíu var reist árið 1037 og var höfuðkirkja Garðaríkis. Á kirkjusvölunum inni í dómkirkjunni var kapella helguð Nikulási. Gömul helgisögn segir frá því kraftaverki þegar „barninu frá Kænugarði“ var bjargað. Barnið hafði drukknað í Dnépr fljóti en morguninn eftir fannst það á lífi í dómkirkju heilagrar Soffíu, frammi fyrir helgimynd heilags Nikulásar. Af hinum ríkulega helgihaldsbúnaði kirkna Kænugarðs hefur engin helgimynd varðveist sem er eldri en frá upphafi 17. aldar. Verkið hefur því sérstakt gildi, enda var það í Soffíu kirkjunni og er elsta varðveitta helgimyndin þaðan.
Stílbrögðin sem notuð voru við gerð þessa verks sýna að þegar undir lok 16. aldar var úkraínsk list tekin að breytast. Evrópska endurreisnin var þá þegar farin að setja sitt mark á hana. Listamenn beindu nú sjónum sínum í auknum mæli að hinum sýnilega heimi og um leið breyttist hin hefðbundna, flata framsetning myndefnisins. Á 17. öld urðu síðan enn róttækari breytingar á myndmálinu sjálfu og þeirri mynd sem listamenn drógu upp af dýrlingunum. Í stað flatari framsetningar voru andlit þeirra nú í ríkari mæli mótuð með leik ljóss og skugga og líkamarnir málaðir þannig að þeir virtust hafa fyllingu og rúmtak. Fellingar klæðanna voru heldur ekki lengur dregnar með stífum, einfölduðum línum. Allt þetta gaf dýrlingunum nýtt yfirbragð; þeir virtust nú mannlegri og meira lifandi.
Þessi þróun gjörbreytti úkraínskri helgimyndalist og fæddi af sér nýja sýn á hið helga rými myndflatarins. Slík nýsköpun hefði ekki verið möguleg nema vegna breytinga sem orðið höfðu á hugmyndaheimi og trúartilfinningu í úkraínsku samfélagi, sem tók æ meira mið af þeim nýju hugmyndastraumum sem léku um Evrópu. Grafskrift á verkinu greinir frá því að það hafi verið málað árið 1642 og nefnir jafnframt hinn látna, Leontíj Tarasovytsj Polotskyj, borgara í Kænugarði.

Höfundur ókunnur
Kraftaverk heilags Georgs og drekans (Heilagur Georg drekabani), síðari hluti 15. aldar
Kirkja upphafningar hins heilaga kross í þorpinu Zvyzjen, nú í Póllandi
Tempera og gylling á lindiviðarplötu með gifsgrunni; platan er samsett úr tveim fjölum og hefur tvo innfellda þverlista
Safneign Listasafns Úkraínu, И−324
Verkið vísar til helgisögunnar þar sem heilagur Georg sigrar drekann ógurlega. En Georg nýtur mikillar lýðhylli í Úkraínu eins og víða annars staðar. Samkvæmt helgisögunni hélt skrímslið til í stöðuvatni og lagði sér til munns ungmenni úr nálægu þorpi sem því voru færð að fórn. Þegar röðin var komin að dóttur konungsins skarst Georg í leikinn, bjargaði stúlkunni og felldi drekann. Í þakklætisskyni tóku borgarbúar kristna trú og reistu kirkju sem helguð var hetjunni.
Fyrir miðju verkinu situr heilagur Georg tignarlegur á hestbaki. Hann rekur grannt spjót sitt djúpt í gin drekans um leið og hvítur hestur hans treður ófreskjuna undir hófum sér. Útlínur dýrlingsins eru ílangar og S laga, en fellingar skikkju hans eru málaðar með hvössum hornum. Hvort tveggja er í andstöðu við þá mjúku og flæðandi hrynjandi sem úkraínsk list hafði tekið í arf frá býsanskri málarahefð.
Gotneski kastalinn er prýddur fjölmörgum turnum og grönnum spírum. Í miðju hans stendur rétttrúnaðarkirkja með hvolfþaki og krossi. Varðmenn gæta borgarhliðsins en borgarbúar gægjast út um gluggana. Prinsessan biður sér hjálpar. Yfir henni svífur engill, tákn um forsjón Guðs sem stýrir spjóti dýrlingsins.
Þetta atriði úr helgisögunni verður hér að litríkri og lifandi frásögn, fullri af smáatriðum. Myndbyggingin er svipmikil og full af hreyfingu. Línurnar skapa fágaða hrynjandi og skrautformin eru fínlega mótuð. Allt sýnir þetta að málarinn þekkti vel til myndmáls síðgotneska tímans en um leið varðveitir verkið þann guðfræðilega og trúarlega kjarna sem einkennir hefð austurkirkjunnar.

Höfundur ókunnur
Heilög Anna, 1680–1685
Einsetuklaustur Jóhannesar skírara nærri Lebedyn í Slobozjansjtsjyna í Úkraínu
Olía og tempera á lindiviðarplötu með gifsgrunni, sem samsett er úr tveim fjölum; skraut grafið í gifsgrunninn og gylling
Safneign Listasafns Úkraínu, И−501
Barokkið blómstraði í Úkraínu á 17. og 18. öld. Trúarlíf rétttrúnaðarkirkjunnar og úkraínskar menningarhefðir mótuðu það og gáfu því þjóðlegan svip. Helgimyndalistin hélt stöðu sinni sem helsta grein myndlistarinnar en stíllinn varð veraldlegri en áður. Dýrlingarnir voru ekki lengur sýndir strangir og meinlætalegir á svip, heldur mildir og fullir samúðar. Nú klæddust þeir líka íburðarmiklum klæðum í samræmi við nýjustu tísku. Í grunninn fylgdu hinar fornu myndgerðir áfram föstum reglum kirkjunnar en tóku nú því til viðbótar að endurspegla samtíma sinn.
Á þessum tíma komu jafnframt fram ný viðmið í myndum af kvendýrlingum: augnaráð hinna helgu kvenna varð blíðara og jafnvel gat sést örla á brosi. Á þessu verki er heilög Anna, móðir Maríu meyjar, klædd að hætti yfirstéttar kósakka. Rauða yfirhöfnin er af gerðinni kúntúsj en slíkum yfirhöfnum klæddist aðalsfólk. Yfirhöfnin er skreytt gylltu mynstri og brydduð dýrum loðfeldi. Undir henni er Anna í grænum kjól með gullsaumuðum ermalíningum. Á höfði ber hún hvítt höfuðklæði af gerðinni namítka, sem var hefðbundið höfuðfat giftra úkraínskra kvenna. Hún heldur á tveimur rauðum rósum og einni hvítri lilju. Blómin tákna hreinleika, náð Guðs og kærleika hans og undirstrika tengsl Önnu við Maríu mey.
Upphaflega myndaði þetta verk par með helgimynd af heilögum Jóakim, eiginmanni Önnu. Sú mynd er varðveitt í safneign Listasafns Úkraínu en er mjög illa farin. Verkin tvö stóðu sitt hvorum megin við mynd af helgum svefni Maríu (lat. dormitio), beint fyrir ofan konungshliðið í helgimyndahliðinu í kirkju Jóhannesar skírara nærri Mykhajlívka í Slobozjansjtsjyna. Sú kirkja heyrir nú sögunni til. Slík verk af foreldrum Maríu voru einkennandi fyrir myndlist þessa svæðis öldum saman en í sviptivindum 20. aldarinnar fór svo að nær allur listaarfur héraðsins var eyðilagður.

Höfundur ókunnur
Dýrlingarnir Volodymyr, Borys og Hlíb, lok 17. aldar
Ratne í Volyn héraði í Úkraínu
Olía og tempera á lindiviðarplötu með gifsgrunni, sem samsett er úr tveim fjölum, með tveimur innfelldum þverlistum; skraut grafið í gifsgrunninn og gylling
Safneign Listasafns Úkraínu, И−8
Á helgimyndinni standa Volodymyr, fursti Garðaríkis, og synir hans tveir, Borys og Hlíb, en Garðaríki, eða Rus’, var miðaldaríki með miðstöð í Kænugarði. Volodymyr, sem nefndur er Valdimar gamli í norrænum fornsögum, náði völdum með stuðningi norrænna væringja. Árið 988 stóð hann fyrir því að kristni varð lögtekin innan ríkis hans. Kirkjan í Kænugarði tók þá Borys og Hlíb fyrst allra í dýrlingatölu strax á 11. öld. Fyrstu helgimyndirnar af bræðrunum urðu til um svipað leyti. Volodymyr sjálfur var ekki tekinn í dýrlingatölu fyrr en mun síðar.
Þetta er elsta varðveitta úkraínska helgimyndin þar sem dýrlingarnir þrír eru sýndir allir saman. Bakgrunnurinn er gylltur og skreyttur mynstri sem grafið er í gifsgrunninn. Þeir bera dýr klæði eftir tísku 17. aldar: síða kyrtla af gerðinni zjúpan og loðbryddaðar yfirhafnir af gerðinni kúntúsj. Aðeins skikkja Volodymyrs er þó brydduð hermelínskinni (vetrarfeldi hreysikattar). Slík skinn voru víða notuð til að skreyta skrúðkápur konunga og drottninga og embættisklæði dómara. Hér er skinnið því tákn um konunglegt vald Volodymyrs og háa stöðu. Kóróna hans er einnig stærri og íburðarmeiri en kórónur sona hans.
Þegar verkið var málað var enn verið að móta staðla fyrir myndræna framsetningu Volodymyrs sem knjaz, en það var miðaldatitill fursta Garðaríkis. Hefðbundinni framsetningu Borys og Hlíb hefur hér hins vegar verið breytt til að falla betur að smekk samtímans. Í stað hatta bera bræðurnir þannig kórónur. Þeir eru einnig sýndir í tískuklæðum 17. aldar en ekki í furstaklæðum og tignarskikkjum af gerðinni korzno sem voru einkennandi fyrir tímann fyrir innrásir Mongóla. Á eldri helgimyndum skörtuðu bræðurnir síðu hári en hér eru þeir sýndir stutthærðir, sérstaklega Hlíb, sem stendur hægra megin.
Annað einkenni barokktímans birtist í andlitum dýrlinganna. Í hefðbundinni helgimyndalist var ásýnd þeirra mótuð eftir stöðluðum fyrirmyndum. Hér eru andlitsdrættir hvers og eins hins vegar einstaklingsbundnir. Litirnir eru skærir og kraftmiklir og gefa verkinu þann líflega hátíðarblæ sem er svo áberandi í úkraínskri barokklist.

Höfundur ókunnur
Krossfestingin ásamt portretti af Leontíj Svítsjka, lok 17. aldar
Uppstigningarkirkjan í þorpinu Oleksíjívka í Poltava héraði í Úkraínu
Olía og tempera á lindiviðarplötu með gifsgrunni, sem samsett er úr tveim fjölum, með tveimur innfelldum þverlistum; skraut grafið í gifsgrunninn og gylling
Safneign Listasafns Úkraínu, И−1
Fyrir miðju verkinu er krossfestingin. Hægra megin við krossinn standa María guðsmóðir, harmi slegin, og guðspjallamaðurinn Jóhannes. Geislabaugar þeirra gefa til kynna dýrlingstign þeirra. Vinstra megin, með hendur í bænastöðu, stendur nafngreindur maður, kósakkaofurstinn Leontíj Svítsjka frá Lúbny. Mynd af þessu tagi er ekki einsdæmi því á 17. og 18. öld varð algengt í úkraínskri málaralist að fella portrett af raunverulegu fólki inn í hið helga rými íkonsins. Oft voru slík verk unnin til minningar um látna og gegndu hlutverki nokkurs konar grafskriftar. Krossfestingarmyndir voru vinsælar enda fékk hinn látni þar að deila myndrými með Kristi sjálfum.
Listamaðurinn greinir af færni á milli hins guðlega heims og hins jarðneska. Að baki hinum helgu persónum er gylltur grunnur með blómaskrauti sem táknar hinn himneska veruleika. Kósakkaofurstinn stendur hins vegar fyrir framan gróft landslag sem táknar hinn jarðneska heim. Venja var að sýna hinn látna krjúpandi í auðmýkt frammi fyrir hinum krossfesta Kristi en hér sjáum við Leontíj Svítsjka standa teinréttan í viðhafnarklæðum. Þannig birtist það sarmatíska stolt sem einkenndi sjálfsmynd pólsk úkraínsku yfirstéttarinnar á 17. öld. Aðalsmenn pólsk litháíska samveldisins röktu ættir sínar aftur til Sarmata en þeir voru forn frelsiselskandi hirðingjaættbálkur. Trúin á þennan uppruna jók stolt þeirra og sannfæringu um eigin sérstöðu gagnvart öðrum stéttum samfélagsins og setti jafnframt mark sitt á klæðaburð þeirra, útlit og hegðun.
Í bakgrunni rís hin himneska Jerúsalem. Við rætur krossins sjáum við höfuðkúpu Adams. Samkvæmt kristinni arfsögn var Adam grafinn á Golgata, sem því er oft nefndur Hausaskeljastaður. Þar frelsaði Kristur síðar mannkynið undan erfðasyndinni með blóði sínu.

Höfundur ókunnur
Verndarhjúpur heilagrar guðsmóður, lok 12. aldar til fyrri hluta 13. aldar
Malnív, Halychyna‑hérað, Úkraína
Tempera á mjúkviðarplötu með gifsgrunni og innfelldum myndfleti
Safneign Listasafns Úkraínu, И−14
Helgimyndin frá Halychyna, í vesturhluta Úkraínu, er elsta varðveitta helgimyndin sem sýnir verndarhjúp heilagrar guðsmóður og jafnframt eina helgimyndin frá svæðinu sem vitað er um frá tímanum fyrir innrásir Mongóla, sem hófust um miðja 13. öld.
Fram að þessu hafði þetta myndefni verið óþekkt í býsanskri helgimyndahefð en það byggir á helgisögu um kraftaverk í Blakhernai‑kirkjunni í Konstantínópel, höfuðborg austrómverska keisaradæmisins sem á þessum tíma var umsetin óvinum. Samkvæmt sögunni birtist heilögum Andrési, sem kallaður var „dári vegna Krists“, sýn af Maríu mey. Hún var umkringd dýrlingum og breiddi slæðu sína (gr. maphorion) eins og verndarhjúp yfir söfnuðinn í kirkjunni. Þannig bjargaði hún borginni frá yfirvofandi innrás.
Verkið er ólíkt síðari tíma myndgerðum þessarar helgisögu. Hér situr María í hásæti með Jesúbarnið við barm sér og hendurnar í opinni bænastöðu (lat. orans). Yfir þeim halda englar slæðunni á lofti. Efst á myndfletinum stendur orðið „Pokrov“. Það vísar bæði til slæðunnar og þeirrar verndar sem hún veitir.
Verkið er eftir afar færan alþýðulistamann og einkennist af hreinum línum, einfölduðum formum og svipmiklum andlitsdráttum. Ólíklegt er að listamaðurinn hafi sjálfur mótað hið margbrotna guðfræðilega myndmál sem hér birtist. Líklegra er að hann hafi unnið eftir eldri fyrirmynd, sennilega frá Kænugarði, þar sem María guðsmóðir var í hávegum höfð. Blakhernai‑klaustrið var stofnað í Klov‑hverfi borgarinnar undir lok 11. aldar. Á 12. öld mótaðist helgihefðin um verndarhjúp guðsmóðurinnar, ásamt myndhefðinni sem henni fylgdi.

Höfundur ókunnur
Verndarhjúpur heilagrar guðsmóður, fjórði áratugur 18. aldar
Kirkja verndarhátíðar heilagrar guðsmóður í þorpinu Súlymívka í Kænugarðshéraði í Úkraínu
Olía og tempera á lindiviðarplötu með gifsgrunni, sem samsett er úr tveim fjölum, með tveimur innfelldum þverlistum; gylling og silfrun á rammanum
Safneign Listasafns Úkraínu, И−7
Frá síðari hluta 17. aldar og fram eftir 18. öldinni tók hefðbundin framsetning verndarhjúps heilagrar guðsmóður smám saman breytingum. Listamenn fóru að fella inn í helgimyndirnar portrett af stjórnmálamönnum og öðrum ráðamönnum, klerkum, stofnendum og velgjörðarmönnum kirkna og foringjum kósakka. Þannig bera verkin svip samtíma síns og hafa sterkan þjóðlegan blæ.
Þessi gerð mynda er stundum kölluð verndarhjúpur kósakkanna. Kósakkar töldu sig njóta sérstakrar verndar Maríu guðsmóður og litu á verndarhátíðina sem sína eigin hátíð. Yfirstéttarfólk úr hópi kósakka kostaði því oft gerð helgimynda með þessu myndefni.
Á helgimyndinni frá Súlymívka stendur sálmaskáldið Rómanos fyrir miðju, á háum kirkjupalli (gr. ambon). Umhverfis hann sjáum við alvörugefinn söfnuð sem stendur fyrir framan helgimyndahlið í úkraínskum barokkstíl. Í hópnum er það fólk sem jafnan er nefnt í frásögninni af kraftaverkinu um verndarhjúp Maríu: biskup, keisari og keisaraynja Býsansríkisins, heilagur Andrés, sem kallaður var „dári vegna Krists“, og Epifaníus, lærisveinn hans. Epifaníus bendir af ákafa upp til Maríu guðsmóður sem svífur yfir söfnuðinum, umkringd dýrlingum. Neðar í myndinni, að baki persónum helgisögunnar, standa kósakkar og klerkar frá 18. öld. Með því að fella samtímamenn inn í helgisöguna færði listamaðurinn kraftaverkið nær áhorfendum og vakti þá tilfinningu að þeir ættu sjálfir andlega hlutdeild í því.
Að baki keisaranum má sjá portrett af Semen Súlyma (d. 1766). Hann var foringi kósakka í Perejaslav og honum tilheyrði þorpið Súlymívka. Súlyma var stofnandi og velgjörðarmaður kirkjunnar í Súlymívka (gr. ktetor) og kostaði gerð helgimyndahliðsins sem í henni var. Verkið gegndi þess vegna tvíþættu hlutverki: það var helgimynd kirkjunnar og sýndi verndarhjúp heilagrar guðsmóður, sem kirkjan var helguð, en var um leið portrett af Semen Súlyma, stofnanda og velgjörðarmanni kirkjunnar. Súlyma er klæddur í íburðarmikinn bleikan satínfrakka (úkr. zjúpan). Frakkinn er síður og fóðraður, með gylltum krækjum. Yfir honum ber hann bláa skikkju og þótt hann væri ekki konungborinn er fóður hennar gert úr hermelínskinni (vetrarfeldi hreysikattar). Í söfnuðinum bregður fyrir fleira fólki frá samtíð Súlyma. Því miður er ekki vitað hverjar þessar persónur voru.

Höfundur ókunnur
Verndarhjúpur heilagrar guðsmóður með portretti af hetmaninum Bohdan Khmelnytskyj, síðari hluti 17. aldar – upphaf 18. aldar
Kirkja verndarhátíðar heilagrar guðsmóður í þorpinu Desjky, Bohúslav umdæmi í Kænugarðshéraði í Úkraínu
Olía og tempera á lindiviðarplötu með gifsgrunni, sem samsett er úr þrem fjölum, með tveimur innfelldum þverlistum og tveimur þverlistum sem bætt var við síðar; útskurður, silfrun og gylling
Safneign Listasafns Úkraínu, И−6
Helgimyndin er meðal merkustu verka í safneign Listasafns Úkraínu. Sérstaða hennar felst ekki síst í portretti af Bohdan Khmelnytskyj (um 1595–1657), sem var þjóðhöfðingi og herstjóri Úkraínu og bar sem slíkur titilinn hetman. Bohdan var þjóðhetja og gekk undir hinu hlýlega viðurnefni „Khmíl pabbi“ (úkr. Batko Khmíl). Nafn hans er nátengt sjálfstæðisbaráttu úkraínsku þjóðarinnar og átökunum við Pólsk litháíska samveldið á árunum 1649–1654 en kósakkar báru hitann og þungann af þeirri baráttu.
Verkið er meðal elstu varðveittu helgimynda af verndarhjúpi heilagrar guðsmóður þar sem höfðingjum úr röðum kósakka bregður fyrir. Fyrir miðju stendur María guðsmóðir. Undir verndarslæðu hennar (gr. maphorion) er hópur krjúpandi fólks á bæn. Hægra megin, að baki táknrænnar myndar af keisara í skikkju og með kórónu á höfði, sjáum við Bohdan Khmelnytskyj. Hann ber fjaðurskreytta húfu og heldur á veldissprota af gerðinni búlava en slíkur sproti var viðhafnarvopn og tákn um vald hetmansins. Khmelnytskyj horfir beint í augu áhorfandans. Fyrirmynd portrettsins af Bohdan var koparstunga sem niðurlenski grafíklistamaðurinn Willem Hondius (um 1598–1652 eða 1658) gerði af honum árið 1651. Koparstungan fór víða á síðari hluta 17. aldar og varð ráðandi fyrirmynd að fjölmörgum síðari tíma portrettum af Khmelnytskyj. Hér birtist eitt elsta dæmið um að mynd Hondiusar af honum hafi verið sett í nýtt samhengi. Samkvæmt einni túlkun eru mennirnir vinstra megin Makarios III, patríarki af Antíokkíu, og sonur hans, Páll frá Aleppó. Þeir ferðuðust um Úkraínu sumarið 1654 og Khmelnytskyj tók vel á móti þeim, eins og Páll greinir frá í ferðabók sinni.
Elsta málningarlagið í verkinu er frá miðri 17. öld eða síðari hluta hennar en á 18. öld var málað yfir hluta verksins. Helgimyndin frá Desjky er verulega frábrugðin öðrum myndum af verndarhjúpi heilagrar guðsmóður frá 15. öld og síðar. Þessi nýja framsetning sögunnar um verndarhjúpinn á rætur í vestur evrópskri myndhefð sem kallast La Madonna della Misericordia. Þar skýlir María þeim sem leita verndar hennar undir skikkju sinni. Þessi nýja framsetning var mjög útbreidd á síðari hluta 17. aldar og fyrri hluta 18. aldar. Þættir úr henni runnu saman við eldri myndhefð og auðguðu hana. Dæmi um það er Verndarhjúpur heilagrar guðsmóður frá Súlymívka frá fjórða áratug 18. aldar. Helgimyndin frá Súlymívka er ekki jafn hátíðleg og verkið frá Desjky en einkennist þess í stað af djúpum innileika og ríkum bænarhug.

Höfundur ókunnur
Svefn hinnar heilögu guðsmóður, fyrri hluti 18. aldar
Lebedyn í Súmy héraði í Úkraínu
Olía og tempera á lindiviðarplötu með gifsgrunni og tveimur innfelldum þverlistum; upphleypt skraut mótað úr gifsi og gylling
Safneign Listasafns Úkraínu, И−18
Hátíð svefns hinnar heilögu guðsmóður í rétttrúnaðarhefðinni á sér nokkra hliðstæðu í hátíð uppnumningar Maríu meyjar til himna (lat. Assumptio Mariae) innan kaþólsku kirkjunnar. Báðar hátíðirnar tengjast lokum jarðlífs Maríu og því að bæði líkami og sál hennar voru numin upp til himna. Í rétttrúnaðarhefðinni er þó lögð sérstök áhersla á andlát hennar, „svefninn“. Hátíð svefnsins hefur allt frá miðöldum verið ein helsta helgihátíðin í úkraínsku samfélagi. Í Hellaklaustrinu, einu elsta og virtasta klaustri Garðaríkis, var höfuðkirkjan helguð svefni guðsmóðurinnar. Þar var varðveitt helgimynd af svefni Maríu sem talin var búa yfir kraftaverkamætti og átti sinn þátt í því að myndefnið breiddist út. Elstu varðveittu úkraínsku myndirnar af svefni guðsmóður eru frá 12. öld.
Þegar leið á 17. og 18. öldina varð framsetning myndefnisins tilfinningaþrungnari. Sú nánd og kyrrláta íhugun sem einkenndi myndir miðalda vék fyrir aukinni dramatík. Á barokktímanum urðu myndir af svefni Maríu síðan að alvöruþrungnu drama, sem hlaðið var launhelgum krafti.
Mannfjöldi hefur safnast um líkbörur Maríu. Þar á meðal eru postular, leikmenn, prestar og fyrirmenn kirkjunnar, ásamt ungum messuþjónum með logandi kerti. Allir eru í klæðnaði sem var í tísku á þeim tíma sem verkið var unnið. Fyrir miðju, bak við lík Maríu, stendur Kristur umlukinn stórum möndlulaga geislabaug sem kallast albaugur (ít. mandorla). Hann heldur á reifuðu barni sem táknar sál Maríu. Kristur stendur fyrir framan upphleyptan flöt sem upphaflega var gylltur en gyllingin er nú glötuð. Líkt og ljóssúla markar flöturinn táknræn skil milli hins himneska og hins jarðneska veruleika. Litlir englar með kerti standa sitt hvorum megin við Krist. Kerúbi er yfir honum og enn ofar svífa tveir englar. Englarnir eru nær klæðalausir en það að persónur á helgimynd væru ekki fullklæddar taldist til tíðinda í úkraínskri helgimyndalist og er dæmi um áhrif frá myndmáli vestrænnar listar. Í forgrunni verksins heggur erkiengillinn Mikael hendurnar af Jefoníasi, gyðingapresti sem reyndi að velta líkbörum Maríu um koll. Listamaðurinn hefur viljandi gert Mikael og Jefonías minni en aðrar persónur verksins. Þannig heldur hann í hefðina um helga skipan myndrýmisins, þar sem stærð persónanna ræðst af vægi þeirra í frásögninni en ekki af staðsetningu þeirra í fjarvíddarrými. Myndin heldur í rýmisskilning helgimyndarinnar og fær því ekki yfirbragð raunsæislegs, veraldlegs málverks. Verkið í heild er mikið sjónarspil sem ber skýrt svipmót af fagurfræði barokktímans.

Upphafning hins sanna kross, lok 17. aldar
Þorpið Núdyzje í Volyn héraði í Úkraínu
Tempera á tréplötu með gifsgrunni, sem samsett er úr tveim fjölum, annarri úr lindiviði og hinni úr greni, með tveimur innfelldum þverlistum; skraut grafið í gifsgrunninn, gylling og silfrun
Safneign Listasafns Úkraínu, И−15
Á helgimyndinni er hinn sanni kross Krists hafinn á loft við hátíðlega athöfn. Samkvæmt kristinni arfsögn fann heilög Helena krossinn í Jerúsalem árið 326. Hún var móðir Konstantínusar mikla Rómarkeisara sem borgin Konstantínópel var nefnd eftir. Hátíð til minningar um fund krossins varð síðar hluti af helgihaldi í Býsansríkinu og hafði þegar á 11. öld borist til Kænugarðs. Elstu varðveittu myndirnar af þessu myndefni eru frá 11. öld. Framsetning þess þróaðist síðan smám saman og varð margbrotnari með tímanum.
Upphafning krossins fer fram inni í kirkju með gotneskum hvelfingum og súlum. Gluggarnir minna á steint gler. Fyrir miðju stendur æðstiprestur á kirkjupalli (gr. ambon) og heldur krossinum andaktugur á lofti yfir höfði sér. Gylltur grunnurinn ljómar að baki honum og undirstrikar útlínur hans. Tveir djáknar styðja við upprétta handleggi hans og halda jafnframt á reykelsiskerjum. Við fætur hans krjúpa tveir litlir messuþjónar með logandi kerti. Sitt hvorum megin við pallinn standa Konstantínus keisari og heilög Helena og bera bæði gullkórónur. Að baki þeim sjáum við mannfjöldann sem fyllir kirkjuna.
Persónurnar eru klæddar eftir tísku 17. aldar. Yfir allri myndinni hvílir alvöruþrunginn og upphafinn blær.

Höfundur ókunnur
Kristur í vínþrönginni, lok 17. aldar
Kirkja heilags Georgs í þorpinu Motyzjyn, Makarív umdæmi í Kænugarðshéraði í Úkraínu
Tempera á lindiviðarplötu með gifsgrunni, sem samsett er úr þrem fjölum, með tveimur innfelldum þverlistum; grafið skraut og silfrun, lituð til að líkjast gyllingu
Safneign Listasafns Úkraínu, И−16
Á 17. öld fóru úkraínskir listamenn að sækja nýtt myndefni í tréristur og koparstungur eftir vestur evrópska meistara. Þetta varð til þess að hin hefðbundna býsanska myndhefð tók smám saman breytingum og áður óþekkt myndefni ruddu sér til rúms. Helgimyndin frá Motyzjyn er dæmi um þetta. Fyrirmynd hennar var Kristur í vínþrönginni, koparstunga eftir flæmska grafíklistamanninn Hieronymus Wierix (1553–1619) frá upphafi 17. aldar.
Myndefnið tengist dýrkun hins dýrmæta blóðs Krists. Hin svonefnda launhelga vínþröng er minni sem sjá má í ýmsum útfærslum frá Frakklandi, Flæmingjalandi, Ítalíu, Póllandi og Þýskalandi. Á þessum myndum sjáum við Krist standa undir krosslaga pressusveif úr timbri. Blóð streymir úr sárum hans og við sjáum að því er safnað í sérstök ker. Þungamiðja þessa myndmáls er blóð Krists, sem skolar burt syndum mannanna.
Í kaþólsku kirkjunni hafði tilbeiðsla blóðs Krists lengi verið þekkt. Fyrir grískkaþólska Úkraínumenn, sem höfðu lengst af fylgt hefðum rétttrúnaðarkirkjunnar, var hins vegar líklega framandi að sýna blóðið streyma úr sárum frelsarans og tengja það við altarissakramentið. Þetta kann að skýra hvers vegna helgimyndin frá Motyzjyn víkur frá vestur-evrópsku fyrirmyndinni. Málarinn fylgdi koparstungu Wierix nákvæmlega að flestu leyti en kaus samt að sleppa þó nokkrum mikilvægum táknum. Á verkinu sjást hvorki sár á líkama Krists né blóðið sem í fyrirmyndinni streymir úr þeim niður í kerið fullt af vínberjaklösum. Þyrnikórónunni er einnig sleppt. Á myndina vantar því lykilatriði sem skýra myndi skilaboð verksins og hvernig það tengist altarissakramentinu: Í fyrirmyndinni blandast blóð Krists við safa vínberjanna. Sá blóðblandni vökvi rennur svo í altariskaleik sem krjúpandi englar halda á milli sín.

Höfundur ókunnur
Þrenning Gamla testamentisins, fjórði–sjötti áratugur 18. aldar
Frá þorpinu Zakrynytsjtsja í Ízjaslav sýslu í Volyn umdæmi (hugsanlega í núverandi Khmelnytskyj- eða Zjytomyr-héraði)
Tempera á plötu úr greniviði með gifsgrunni, sem samsett er úr tveim fjölum og hefur tvo innfellda þverlista sem bætt var við þegar gert var við verkið; skraut grafið í gifsgrunninn og silfrun
Safneign Listasafns Úkraínu, И−398
Verkið er eignað meistara sem starfaði við verkstæði sem sérhæfði sig í gerð helgimynda, í borginni Ostroh í Volyn héraði. Vinnustofan tók til starfa undir lok 17. aldar. Þau verk sem þar voru unnin einkennast af björtum og brosandi andlitum, með háum ennum og stórum, mildum augum. Tilfinning fyrir einlægu sakleysi, sem á rætur í alþýðulist, einkennir verkin og gerir þau afar hrífandi.
Í samræmi við hefðbundna framsetningu er hin flókna guðfræðilega kenning um heilaga þrenningu hér myndgerð út frá frásögn Biblíunnar um englana þrjá sem vitjuðu Abrahams og nutu gestrisni hans. Abraham og Sara voru barnlaus en að launum fyrir greiðvikni þeirra gaf Guð þeim son, Ísak. Það vekur athygli að Sara er ekki sjáanleg á myndinni. Á silfruðum, upphleyptum grunni eru húsið og þétt laufkróna Mamre eikarinnar máluð af óvæntu raunsæi. Mamre eikin, sem einnig er nefnd Abrahamseikin, er hið forna tré sem frásögnin tengir við stað nærri Hebron á Vesturbakkanum. Landslagið er að öðru leyti sýnt með hefðbundnum hætti en strjáll gróður lífgar það upp. Hin táknhlaðna kyrralífsuppstilling á hvítdúkuðu borðinu er óvenju lifandi og fersk.
Eitt helsta einkenni helgimyndarinnar frá Ostroh er að skrautið, sem grafið er í gifsgrunninn, nær ekki aðeins yfir bakgrunninn heldur einnig yfir klæði persónanna. Hinar gullnu skikkjur himnesku veranna þriggja eru prýddar blómaskrauti og virðast fyrir vikið enn íburðarmeiri en ella. Milt og einlægt augnaráð englanna vekur traust hjá áhorfandanum.
Volodymyr Borovykovskyj (1757–1825)
María mey, 1784
Úr helgimyndahliði Þrenningarkirkjunnar í Myrhorod í Poltava héraði í Úkraínu
Olía á lindiviðarplötu með gifsgrunni, sem samsett er úr tveim fjölum, með tveimur innfelldum þverlistum
Safneign Listasafns Úkraínu, Ж−427
Volodymyr Borovykovskyj tilheyrði þeirri kynslóð úkraínskra listamanna sem voru að hefja feril sinn um það leyti sem landið glataði sjálfstæði sínu að fullu og rann inn í rússneska keisaradæmið. Eftir því sem staða föðurlands þeirra veiktist fluttu margir þessara færu listamanna til rússnesku höfuðstaðanna, Moskvu og Pétursborgar. Þar náðu þeir miklum frama og gátu ræktað hæfileika sína til fulls en héldu jafnframt sterkum tengslum við hið undirokaða heimaland sitt og menningu þess.
Volodymyr tilheyrði kósakkaættinni Borovyk en af þeirri ætt voru margir helgimyndamálarar. Fjölskyldan rak vinnustofu í Myrhorod í Poltava héraði. Áður en Volodymyr hélt til Pétursborgar árið 1788 málaði Borovykovskyj fjölda verka fyrir helgimyndahlið en einnig portrett. Nær allur sá mikli listaarfur sem hann skildi eftir sig í Úkraínu áður en hann fluttist til Rússlands tapaðist á Sovéttímanum.
Helgimyndirnar af Maríu mey og Kristi mynduðu par og voru í neðstu röð helgimyndahliðs Þrenningarkirkjunnar í Myrhorod en sú bygging var jöfnuð við jörðu á fjórða áratug 20. aldar. Bæði þessi verk bera vott um mikla færni listamannsins og þá öflugu hefð úkraínskrar málaralistar sem hann var hluti af.
Þær stílbreytingar sem einkenndu tímabilið settu þó einnig mark sitt á helgimyndagerðina: Hin ríkulega skreytta og fegraða mynd með sínum heilaga blæ vék smám saman fyrir veraldlegri og raunsærri framsetningu. Í auknum mæli tóku listamenn að hverfa frá hinum gyllta bakgrunni og ójarðneskum blæ hans. Andlitin voru nú mótuð með fíngerðum leik ljóss og skugga og í auknum mæli sjáum við flæðandi skil milli litatóna. Persónurnar öðlast í þessum verkum aukna fyllingu og rúmtak í myndrýminu. Skýin bólgna út og ólga og umhverfis Maríu svífur fjöldi vængjaðra kerúba sem sýndir eru frá krefjandi sjónarhornum sem vitna um þróaða fjarvíddartækni. Allt ber þetta vitni um nýtt skeið í þróun málaralistarinnar. María hefur yfir sér ljóðrænan blæ en Jesúbarnið er sýnt sem fríður lítill drengur sem leikur sér við fugl. Þrátt fyrir allt raunsæið minna þó hið tigna fas Maríu, hvíta dúfan sem táknar heilagan anda og kerúbarnir sem umkringja hana á að hún er drottning himinsins – ekki jarðnesk vera.
Volodymyr Borovykovskyj (1757–1825)
Kristur, 1784
Úr helgimyndahliði Þrenningarkirkjunnar í Myrhorod í Poltava‑héraði í Úkraínu
Olía á lindiviðarplötu með gifsgrunni, sem samsett er úr tveim fjölum, með tveimur innfelldum þverlistum
Safneign Listasafns Úkraínu, Ж−426
Í helgimyndum eftir Borovykovskyj koma fram fyrstu merki nýklassísismans í úkraínskri list. Þessi nýju stíleinkenni mótuðust ekki innan veggja Keisaralegu listaakademíunnar heldur á litlu verkstæði listamannsins í úkraínskum smábæ. Þetta sýnir hversu opin úkraínsk menning var fyrir nýjum straumum í listum. Hún gerði þá að sínum, fléttaði þá saman við rótgrónar hefðir og lagaði þá að smekk samtímans.
Tignarleg form Krists og Maríu guðsmóður minna á klassískar höggmyndir fornaldar en andlitsgerðir þeirra bera þó enn merki barokkhefðarinnar. Litavalið er yfirvegað og hófstillt. Við sjáum ekki merki um þá skrautlegu framsetningu og litadýrð sem einkenndu tímabilið á undan. Listamaðurinn sýnir af mikilli leikni andlit, hendur og kerúbahöfuð í flóknum fjarvíddarstyttingum. Sérstaka athygli vekur stór blár hnöttur sem liggur við fætur Krists og táknar veröldina. Fyrir miðju hnattarins sjáum við Adam allsnakinn undir skilningstrénu. Sú mynd táknar sköpun heimsins.
Sovésk yfirvöld létu eyðileggja öll hin verkin sem Volodymyr Borovykovskyj málaði fyrir helgimyndahlið Þrenningarkirkjunnar. Nú er því einungis hægt að gera sér í hugarlund hvernig hliðið hefur litið út í heild sinni.

Höfundur ókunnur
Fæðing Krists, um miðja 18. öld
Úr óþekktu þorpi í Perejaslav umdæmi í Kænugarðshéraði í Úkraínu
Olía og tempera á lindiviðarplötu með gifsgrunni, sem samsett er úr tveim fjölum og er með tveimur innfelldum þverlistum; gylling
Safneign Listasafns Úkraínu, И−3
Myndefni verksins á rætur í sýn heilagrar Birgittu frá Svíþjóð (lat. Sancta Birgitta Suecica) af fæðingu Krists. Myndir byggðar á þessari sýn voru útbreiddar í evrópskri list. Listamaðurinn hefur að öllum líkindum stuðst við evrópska koparstungu sem fyrirmynd. Verkið víkur þó frá viðtekinni myndhefð á ýmsan hátt. Atburðurinn á sér ekki stað við fjárhús, eins og venja var, heldur í hallarsal. Jesúbarnið er reifum vafið en liggur ekki á jörðinni heldur í vöggu. Ekkert ljós stafar heldur frá barninu. Þess í stað birtist áttarma Betlehemsstjarnan skýjum ofar og lýsir upp atburðinn með löngum geislum sínum. María krýpur á bæn frammi fyrir Jesúbarninu. Athygli vekur að hún ber ekki hina hefðbundnu slæðu (gr. maphorion). Það er afar óvenjulegt frávik frá hefðbundinni framsetningu í úkraínskri helgimyndalist.
Sérstaka athygli vekja fjárhirðarnir tveir sem krjúpa í hægra horni myndarinnar. Andlitsdrættir annars fjárhirðisins bera einkenni sem tengja má bæði við Mið Austurlönd og Austur Asíu. Hann heldur á hljóðfæri sem líkist sekkjapípu og kallast koza í Úkraínu. Hljóðfærið naut vinsælda í Austur Evrópu. Í gegnum súlnagöngin sjáum við kirkju með þrískiptu hvolfþaki en slík þök einkenna úkraínskan barokkarkitektúr. Blátónar veggjanna, klæða fjárhirðisins og himinsins spila fínlega á móti ljósbleikum súlunum. Litavalið er dæmigert fyrir litaskala rókókósins og ljær rými verksins fínlegan blæ.

Höfundur ókunnur
Stórpíslarvotturinn Paraskeva, umkringd svipmyndum úr helgisögu hennar, um miðja 18. öld
Úkraína austan Dnépr fljóts
Olía og tempera á furuplötu með gifsgrunni, sem samsett er úr þrem fjölum og með tveimur innfelldum þverlistum; upphleypt skraut mótað úr gifsi og gylling
Safneign Listasafns Úkraínu, И−203
Á þessu verki er Paraskeva sýnd umkringd svipmyndum úr helgisögu hennar. Hin hefðbundna framsetning dýrlingsins hefur verið endurmótuð til að ríma við samtíma verksins. Glæsileg kóróna, hárgreiðsla í vestur evrópskum stíl, stakur lokkur sem fellur niður með hálsinum, perlur í hrokknu hárinu og fínlegur eyrnalokkur settur eðalsteinum – allt þetta ljær dýrlingnum óvæntan svip. Að hætti fegurðardísa rókókótímans ber hún líka fíngert perluhálsband sem situr hátt á löngum og grönnum hálsinum. Paraskeva er klædd í græn flauelsklæði með gylltu mynstri og kögri. Yfir flauelsklæðunum ber hún það sem virðist vera gyllt brynja eða brjósthlíf, sem fest er með gullbelti og dýrri sylgju sem dregur fram mitti dýrlingsins. Hún er ennfremur sveipuð í skærrauða skikkju. Gagnsæ og létt undirskyrta læðist upp úr lágu hálsmálinu og á henni er örsmá rauð slaufa. Handleggirnir eru berir upp að olnbogum. Paraskeva snýr líkama og höfði lítillega til hliðar og það gæðir myndina lífi. Af þessu má sjá hversu miklum stakkaskiptum stíll og gerð helgimynda höfðu tekið um miðja 18. öld.
Fyrirmyndir verksins virðast hafa verið rókókóportrett af aðalskonum. Listamaðurinn virðist leggja áherslu á að draga upp mynd af heillandi konu fremur en stórpíslarvotti sem leið fyrir trú sína. Paraskeva heldur á bókrollu sem á eru rituð orðin sem hún beindi til kvalara síns en sá texti hefur varðveist í sálmi eða lofsöng til dýrlingsins sem kallast á grísku akathistos. Í smámyndunum á köntunum umhverfis aðalmyndina sjáum við hina heilögu þrenningu Nýja testamentisins efst fyrir miðju. Hinar smámyndirnar ellefu sýna þjáningar og píslarvætti Paraskevu. Þrátt fyrir þjáningarnar sem þar eru sýndar gefa skýr uppbygging og skærir litir verkinu upphafinn blæ.

Höfundur ókunnur
Stórpíslarvottarnir Anastasía og Júlíana, fimmti áratugur 18. aldar
Norðurhluti Úkraínu austan Dnépr‑fljóts
Olía og tempera á lindiviðarplötu með gifsgrunni, sem samsett er úr tveim fjölum, með tveimur þverlistum af ólíkri gerð; skraut grafið í gifsgrunninn, silfrun og gylling
Safneign Listasafns Úkraínu, И−430
Verkin tvö af dýrlingunum Anastasíu og Júlíönu annars vegar og Barböru og Katrínu hins vegar mynduðu par. Þau eru án efa meðal meistaraverka úkraínskrar myndlistar. Parið var áður hluti af helgimyndahliði óþekktrar kirkju í Súmy‑héraði. Helgimyndahliðið var einstætt listaverk, unnið af meisturum Kænugarðsskólans, en er nú glatað. Myndin af Anastasíu á sér enga hliðstæðu meðal úkraínskra dýrlingamynda og myndir af Júlíönu eru afar fágætar. Það hversu sjaldséð myndefnið er og sú mikla færni sem verkin bera vott um benda til þess að fólk úr yfirstétt kósakka hafi pantað þau. Líkum hefur verið leitt að því að dýrlingarnir tveir tengist þeim Anastasíu Skoropadsku (1667–1729) og Úljönu Apostol (d. 1742) en þær voru eiginkonur tveggja höfðingja hetmanstjórnarinnar. Vitað er að Anastasíja var velgjörðarmaður kirkju heilagrar Anastasíu í Hlúkhív í Súmy‑héraði en borgin hafði þá nýlega verið gerð að höfuðborg hetmanstjórnarinnar í héraðinu. Mjög líklegt þykir að verkin hafi upphaflega verið hluti af helgimyndahliði þeirrar kirkju.
Anastasía og Júlíana teljast báðar til stórpíslarvotta (gr. megalomartyr) vegna þeirra óvenju miklu þjáninga sem þær þurftu að líða við píslarvættisdauða sinn. Þrátt fyrir það hafði engin stöðluð myndhefð skapast um þær. Af þeim sökum hafði listamaðurinn frjálsari hendur en við gerð íkona af þekktari dýrlingum. Anastasía ber sérkennilegt höfuðfat sem skreytt er rauðum fjaðurskúfi, stórum eðalsteinum og löngum borðum. Slíkur höfuðbúnaður hafði aldrei áður sést á mynd af kvendýrlingi og birtist reyndar ekki aftur í því samhengi. Blárri satínslæðu er brugðið yfir höfuð Júlíönu. Slæðan er með gylltri bryddingu og fest með gullhnappi fyrir miðju. Dýr klæði dýrlinganna eru loðbrydduð og skreytt blómamynstri og útsaumi úr gull‑ og silfurþráðum. Fíngerðar blúndur undirkjólanna sjást í flegnu hálsmálinu og fágaðir skartgripir prýða hálsa þeirra. Allt þetta færir útlit dýrlinganna nær því sem tíðkaðist meðal kvenna á 18. öld.

Höfundur ókunnur
Stórpíslarvottarnir Barbara og Katrín, fimmti áratugur 18. aldar
Norðurhluti Úkraínu austan Dnépr‑fljóts
Olía og tempera á lindiviðarplötu með gifsgrunni, sem samsett er úr tveim fjölum, með tveimur þverlistum af ólíkri gerð; skraut grafið í gifsgrunninn, silfrun og gylling
Safneign Listasafns Úkraínu, И−417
Verkin af píslarvottunum Barböru og Katrínu annars vegar og Anastasíu og Júlíönu hins vegar mynda par. Bæði verkin voru líklega hluti af helgimyndahliði kirkju heilagrar Anastasíu í Súmy‑héraði. Dýrkun hinna heilögu Barböru og Katrínar varð útbreidd í Úkraínu á 17. og 18. öld.
Andi rókókóstílsins setur svip sinn á helgimyndirnar. Þetta sést í mjúkum línunum sem afmarka líkama dýrlinganna, áhyggjulausu augnaráði þeirra, fíngerðu andlitsfallinu og léttum leik borðanna sem blakta að baki þeim. Við útfærslu andlitanna sýnir listamaðurinn fádæma leikni. Fölir okkurgulir og bleikir tónar tvinnast fínlega saman. Bjartari liturinn er málaður með þunnu, nær gagnsæju lagi og skuggarnir hafa yfir sér mildan litblæ. Allt þetta gefur andlitunum óvenjulega útgeislun, næstum eins og þau væru úr postulíni. Á einum myndfleti teflir listamaðurinn saman margbreytilegum og íburðarmiklum klæðum sem skreytt eru með flóknum mynstrum á meðan stórir, einlitir fletir mynda mótvægi við litadýrðina og tryggja jafnvægi. Þetta er fyrsta dæmið um djúpt flegið hálsmál í helgimyndalist. Litlu rauðu og bláu höfuðfötin minna á franska tískuhatta frá rókókótímanum, ekki síst vegna borðanna sem leika um þá.
Í þessum tveim fögru og kyrrlátu myndum af stórpíslarvottunum fjórum birtist skýrt eitt af þemum barokklistarinnar: memento mori, áminningin um óumflýjanleika dauðans. Áherslan er hér þó ekki á óhugnaðinn sem fylgir því þegar líkaminn hrörnar og eyðist heldur á það sem tekur við handan við heim forgengileikans. Dýrlingarnir dvelja í undursamlegri, ójarðneskri veröld þar sem fegurðin virðist ríkja ein. Um leið er gefið til kynna að jafnvel við hin dauðlegu getum öðlast hlutdeild í þessum handanheimi. Íburðarmikil klæðin, þakin blómamynstrum, minna á hina síblómstrandi fegurð þessarar eilífu Paradísar. Barbara og Katrín hafa hvorki yfirbragð meinlætamanna né virðast þær í órafjarlægð frá venjulegu fólki. Þvert á móti eru þær afar lifandi, fagrar og aðlaðandi. Þannig færist hinn guðlegi heimur nær hinum trúuðu og verður þeim nálægur og aðgengilegur.
Verkin tvö af Barböru og Katrínu annars vegar og Anastasíu og Júlíönu hins vegar voru hugsuð sem ein heild innan helgimyndahliðsins og mynda saman nokkurs konar lofsöng helgum konum til heiðurs. Ekki er vitað um nokkuð annað helgimyndahlið þar sem svo mörgum kvendýrlingum var skipað saman í neðstu röðina, næst kirkjugestunum.

Höfundur ókunnur
Heilög Paraskeva, 1730
Þorpið Vysoke í Kænugarðshéraði í Úkraínu
Olía og tempera á lindiviðarplötu með gifsgrunni, sem samsett er úr tveim fjölum og er með tveimur innfelldum þverlistum; skraut grafið í gifsgrunninn
Safneign Listasafns Úkraínu, И−5
Kirkjur helgaðar heilagri Paraskevu Pjatnytsja, verndardýrlingi verslunar, voru gjarnan reistar við markaðstorg þorpa og borga. Heimildir um slíkt ná allt aftur til miðrar 12. aldar. Helgimyndir af Paraskevu voru algengar í úkraínskum kirkjum enda var hún ein af ástsælustu dýrlingum Úkraínu. Frá 15. öld var hún sýnd berhöfðuð, ýmist með eða án kórónu, en andlitið hélt sínu hefðbundna svipmóti. Frá 17. öld tóku myndir af henni æ meira mið af samtímanum og klæðnaður hennar varð íburðarmeiri.
Hér eru Paraskevu hins vegar gefnir andlitsdrættir sem eru lifandi og bersýnilega einstaklingsbundnir, svo að myndin minnir nánast á portrett af raunverulegri konu. Dýrlingurinn mætir augnaráði áhorfandans með stórum, brúnum augum sínum; svipurinn er mildur en um leið athugull og spyrjandi. Paraskeva snýr líkama og höfði örlítið til hliðar. Það gæðir myndina lífi og gefur til kynna innri kyrrð hennar. Sérstaka athygli vekur höfuðklúturinn, sem er úr dýru, röndóttu efni og vafinn laust um höfuð hennar. Laus lokkur úr hrokknu, rauðbrúnu hári læðist undan klútnum og ljær myndinni óvæntan kvenlegan þokka, en slíkt hefði verið óhugsandi á eldri helgimyndum.
Paraskeva telst til stórpíslarvotta (gr. megalomartyr). Dýr klæði, djúpir litir og ríkulegt, upphleypt barokkskraut á bakgrunninum gefa myndinni hátíðlegan og tilfinningaþrunginn kraft þótt einungis táknin sem hún heldur á minni á þá miklu þjáningu sem hún þurfti að líða í píslarvætti sínu.

Höfundur ókunnur
Hinn alvaldi Kristur, fyrri hluti 18. aldar
Kirkja fæðingar hinnar heilögu guðsmóður í þorpinu Mala Búhajívka, Vasylkív‑umdæmi í Kænugarðshéraði í Úkraínu
Olía og tempera á furuviðarplötu með gifsgrunni, sem samsett er úr þrem fjölum og er með grópum fyrir tvo þverlista af ólíkri gerð; upphleypt skraut mótað úr gifsi; silfrun og litur sem líkir eftir gyllingu
Safneign Listasafns Úkraínu, И−256
Helgimyndirnar af Kristi hinum alvalda (gr. pantokrator) og Maríu guðsmóður voru hugsaðar sem par. Samkvæmt fornri hefð var þeim komið fyrir í neðstu röð helgimyndahliðsins, sitt hvorum megin við konungshliðið: Kristur hægra megin og María til vinstri. Jesús og María voru því neðarlega og þar með nálægt hinum trúuðu, sem gátu leitað til þeirra í bæn og fundið fyrir innri tengslum við hinar helgu myndir.
Við sjáum hvernig svipmót Krists á helgimyndunum er að breytast. Andlitið er opið og fullt samúðar. Stór, brún augun vekja hjá hinum trúaða von um syndaaflausn. Eyrun eru stór og áberandi, líkt og algengt var á þessum tíma. Þannig er gefið til kynna að Kristur heyri allar bænir. Hér birtist Kristur ekki sem strangur dómari heldur sem góður hirðir og fræðari, þótt hann haldi einnig á opinni guðspjallabók sem er tákn fyrir hinn hinsta dóm sem felldur verður á dómsdegi.
Íburðarmikil, mynstruð klæði, víðar ermar og litrík fóður gefa búningi Krists ríkulegan svip. Slíkur klæðaburður varð sérstaklega vinsæll í úkraínskri list á barokktímanum. Hið geislandi, guðlega ljós sem streymir frá Kristi er gert sýnilegt með fíngerðum gylltum línum sem fylgja hæstu brúnum fellinganna í skikkju hans (gr. himation). Þessi aðferð undirstrikar hið yfirskilvitlega eðli hins guðlega ljóss.
Því miður létu sovésk yfirvöld eyðileggja bæði kirkjuna og helgimyndahliðið sem geymdi þetta íkonapar af Kristi og Maríu mey. Þessar tvær helgimyndir eru þær einu sem lifðu þá eyðileggingu af og hafa varðveist til þessa dags.
Höfundur ókunnur
María guðsmóðir með Jesúbarnið, fyrri hluti 18. aldar
Kirkja fæðingar hinnar heilögu guðsmóður í þorpinu Mala Búhajívka, Vasylkív umdæmi í Kænugarðshéraði í Úkraínu
Olía og tempera á furuviðarplötu með gifsgrunni, sem samsett er úr þrem fjölum og er með grópum fyrir tvo þverlista af ólíkri gerð; upphleypt skraut mótað úr gifsi; silfrun og litur sem líkir eftir gyllingu
Safneign Listasafns Úkraínu, И−87
Verkið, sem sýnir Maríu guðsmóður og Jesúbarnið, er úr neðstu röð helgimyndahliðsins í kirkju fæðingar hinnar heilögu guðsmóður. Þar myndaði það par með helgimyndinni af Kristi hinum alvalda en verkin voru sitt hvorum megin við konungshliðið. Þá niðurskipan má rekja allt aftur til 11. aldar og altarisskilrúma frá tímum Garðaríkisins.
Um aldir var býsanskur myndlistararfur miðalda ein helsta undirstaða úkraínskrar listar. Þennan arf má greina hvað skýrast í mósaíkmyndum og freskum í kirkjum Kænugarðs frá 11. og 12. öld. Stór og tignarleg form voru eitt helsta einkenni þessarar listhefðar. Dýrlingarnir fylltu gjarnan stóran hluta myndflatarins. Allt þetta gaf myndunum mikinn tjáningarkraft sem greinir úkraínskar helgimyndir frá sams konar verkum frá öðrum svæðum.
Á 18. öld fékk framsetning mynda af Maríu og Jesúbarninu nýtt svipmót. Andlitsdrættir beggja urðu mildir og fágaðir og þau fengu hlýjan og góðlegan svip. Þannig endurspeglaði myndmálið smekk úkraínsks samfélags á þessum tíma. Helgimyndin frá Búhajívka tilheyrir þeirri myndhefð sem kennd er við hina blíðu móður og kallast eleusa á grísku. Nánd móður og barns er hér í forgrunni: Jesúbarnið hreiðrar um sig upp við vanga Maríu og hún styður blíðlega við fót þess.
Klæðnaður Maríu og Krists ber einnig vitni um breytta tíma. Í stað hinnar hefðbundnu einlitu slæðu Maríu (gr. maphorion) og skikkju Krists (gr. himation) sýndu úkraínskir listamenn mæðginin nú í dýrum klæðum með gylltu mynstri, litríkum bryddingum og skrautborðum sem prýddir eru eðalsteinum. Íburðurinn sem klæðin vitna um og upphleyptur bakgrunnurinn leggjast á eitt og gefa verkunum skrautlegan hátíðarsvip.

Höfundur ókunnur
Innreið Jesú í Jerúsalem, 1729
Dómkirkja svefns hinnar heilögu guðsmóður í Hellaklaustrinu í Kænugarði í Úkraínu; úr hátíðarröð aðalhelgimyndahliðsins
Olía á lindiviðarplötu með gifsgrunni, sem samsett er úr þrem fjölum, með tveimur innfelldum þverlistum; gylling
Safneign Listasafns Úkraínu, И−187
Hellaklaustrið, Kyjevo Petsjerska lavra, er einn mikilvægasti helgistaður úkraínsku þjóðarinnar. Höfuðkirkja klaustursins, dómkirkja svefns hinnar heilögu guðsmóður, var reist á árunum 1073–1089. Meistarar frá Konstantínópel, höfuðborg Býsansríkisins, reistu kirkjuna og skreyttu hana mósaíkmyndum og freskum. Árið 1718 varð mikill eldsvoði í klaustrinu. Klausturbyggingarnar, bókasafnið og dómkirkjan urðu illa úti og fornu mósaíkmyndirnar og helgimyndahlið í endurreisnarstíl urðu eldinum að bráð.
Hetmaninn Ívan Skoropadskyj (1646–1722) og eiginkona hans, Anastasíja (1667–1729), stóðu straum af endurreisn dómkirkjunnar. Málarar klaustursins komu einnig að gerð hinna umfangsmiklu veggmálverka og helgimyndahliðsins, en allt frá 11. öld var í klaustrinu rekin rómuð vinnustofa sem um aldir var mikilvæg miðstöð myndlistar og hafði víðtæk áhrif á listsköpun í Úkraínu og víðar. Gerð nýja helgimyndahliðsins lauk árið 1729 en varðveittar heimildir nefna ekki nöfn listamannanna.
Árið 1919 lét kommúnistastjórn bolsévika í Moskvu loka klaustrinu og nokkur verk úr helgimyndahliðinu voru flutt á söfn. Árið 1941, á meðan á hersetu nasista stóð, var dómkirkja svefns hinnar heilögu guðsmóður sprengd í loft upp og gereyðilögð. Af helgimyndum klaustursins hafa því aðeins örfáar varðveist. Þeirra á meðal eru Innreið Jesú í Jerúsalem og Fæðing Krists. Þau tilheyrðu bæði annarri röð helgimyndahliðsins, hinni svonefndu hátíðarröð, þar sem sýndar voru myndir sem tengdust hátíðardögum kirkjuársins.
Helgimyndirnar bera vott um afburðafærni og nýja listræna sýn á hið helga rými sem þá var að ryðja sér til rúms í úkraínsku samfélagi. Í Innreið Jesú í Jerúsalem heldur málarinn í hefðbundna uppbyggingu en gefur senunni nýjan svip með því að láta persónurnar í forgrunni snúa baki í áhorfandann. Slík framsetning þótti ekki tiltökumál í trönumálverkum en er sjaldséð í helgimyndalist.
Málarinn sótti innblástur í myndskreytta Biblíuútgáfu Nicolausar Ioannis Piscators frá árinu 1674. Eintak af henni var til á vinnustofu klaustursins. Málarinn lét sér þó ekki nægja að líkja eftir svarthvítri koparstungunni heldur túlkaði myndefnið á skapandi hátt. Hann mótaði eigin litasamsetningu, breytti láréttu myndsniðinu í lóðrétt, setti senuna inn í nýtt landslag með raunsæislegum borgarmúrum og byggingum og endurmótaði persónurnar og búninga þeirra. Verkið er auk þess miklu stærra en koparstungan sem lögð var til grundvallar. Þessi mikla stækkun hefur krafist óvenjulegrar færni af listamanninum. Þrátt fyrir allar þessar listrænu nýjungar og þann raunsæisblæ sem listamaðurinn leitast við að skapa ber verkið einnig höfuðeinkenni helgilistar þessa tíma. Frá Kristi stafar enda ójarðneskt, guðlegt ljós svo gylltur bjarmi umvefur persónurnar sem standa honum næst.

Höfundur ókunnur
Fæðing Krists, 1729
Dómkirkja svefns hinnar heilögu guðsmóður í Hellaklaustrinu í Kænugarði í Úkraínu; úr hátíðarröð aðalhelgimyndahliðsins
Olía á lindiviðarplötu með gifsgrunni, sem samsett er úr þrem fjölum, með tveimur innfelldum þverlistum; gylling
Safneign Listasafns Úkraínu, И−186
Verkið er enn eitt dæmið um hvernig listamenn gátu unnið með og endurmótað hefðbundna táknfræði. Hér er guðlegt ljós gert að þungamiðju frásagnarinnar af fæðingu Krists. Nánast allt víkur hér frá hefðbundinni framsetningu þessa söguefnis. Uppbygging myndarinnar er nýstárleg og fyrir vikið óvenjulega kraftmikil. Listamanninum tekst að skapa tilfinningu fyrir hreyfingu, en slíkt hefði löngum þótt óhugsandi í helgimynd. Hreyfingin vindur sig í spíral frá Maríu og Jesúbarninu fyrir miðju. Hirðarnir beygja sig yfir barnið, dáleiddir af ljómanum sem stafar frá því. Allar persónurnar dragast inn í þennan ljóshring. Líkamsstöður þeirra og augnaráð beina sjónum okkar síðan upp á við, að hvíta ljósinu sem birtist þar sem himnarnir opnast efst á myndfletinum. Atburðinum er brugðið upp sem lifandi frásagnarsenu, nánast eins og sagan sé að gerast fyrir augum okkar. Persónurnar horfa til himins, sumar með galopinn munn. Þannig er djúp lotning þeirra gerð sýnileg.
María og hirðarnir eru sýndir í líflegum og margbreytilegum stellingum. Persónurnar sjást frá óhefðbundnum og óvæntum sjónarhornum. Allt ber þetta vott um mikla færni listamannsins. Sérstaka athygli vekur að María ber ekki hina hefðbundnu slæðu (gr. maphorion) á höfði. Þess í stað er hún með létta, hvíta blæju sem fellur mjúklega af höfðinu niður yfir axlirnar. Liðað, kastaníubrúnt hár hennar og bert eyra sjást greinilega. Slíkt var afar óvenjulegt í þeim myndum af guðsmóðurinni sem gerðar voru innan rétttrúnaðarhefðarinnar á þessum tíma.
Andlit hirðanna tveggja sem horfa á barnið eru ýkt, allt að því afskræmd. Svipbrigði þeirra eru sterk og andlit annars er áberandi þrútið. Annað eins hefði löngum verið óhugsandi í hinu helga rými íkonsins. Landslagið er önnur nýjung. Hér kemur það alfarið í stað hins gyllta grunns sem táknaði hinn yfirskilvitlega heim. Samkvæmt eldri hefð var fæðingin gjarnan sviðsett í helli en síðar oft í fjárhúsi. Hér eru rústir frá fornöld hins vegar hafðar að sögusviði. Í helgimyndalist var myrkur næturinnar oftast ekki myndgert bókstaflega. Betlehemsstjarnan var yfirleitt látin nægja sem vísbending um að atburðurinn ætti sér stað að næturlagi. Hér sjáum við hins vegar dimman næturhimin og djúpgráa skugga á rústunum í bakgrunninum. Á móti þessu myrkri stillir listamaðurinn upp skínandi hvítu ljósi hins himneska heims þar sem englarnir birtast, ásamt þeim ójarðneska, gyllta ljóma sem stafar frá Jesúbarninu. Þessar sterku andstæður ljóss og myrkurs eru meðal þeirra einkenna evrópskrar barokklistar sem hvað skýrast birtast í úkraínskri málaralist.

Höfundur ókunnur
Pelíkaninn, 18. öld
Landsvæðið umhverfis miðbik Dnépr fljóts í Úkraínu
Olía á striga
Safneign Listasafns Úkraínu, И−50
Allegórískt og myndhverft myndmál, þrungið djúpri, duldri merkingu, setti sterkan svip á barokklistina. Úkraínsk helgimyndalist var alla tíð táknræn, en frá 17. öld bættust ný tákn við og juku enn á launhelgan blæ verkanna.
Á 17. og 18. öld kom einnig fram nýtt myndefni í úkraínskri list: pelíkani sem opnar sár á bringu sinni til að næra unga sína á eigin blóði. Þetta ævaforna tákn tengist altarissakramentinu og lausnarfórn Krists á krossinum. Sé það haft í huga verður skiljanlegt hvers vegna við sjáum fleiri hluti sem tengjast þeirri fórn á myndinni, svo sem krossinn á Golgatahæðinni, kaleikinn, spjótið og reyrstöngina með ediksbleyttum svampinum, auk hins logandi kærleikshjarta Krists. Hjartað var nýbreytni í myndmáli rétttrúnaðarkirkjunnar og ber glöggt vitni um áhrif vestur evrópsks táknmáls á úkraínsku barokklistina. Myndefnið naut vinsælda meðal Úkraínumanna og hélt áfram að birtast í úkraínskri list allt til loka 19. aldar.
Höfundur ókunnur
Hinn efsti dómur (brot), 19. öld
Þorpið Sjpytky í Kænugarðshéraði í Úkraínu
Tempera á striga
Safneign Listasafns Úkraínu, И−111
Verkið mun hafa staðið í timburkirkju í þorpinu Sjpytky sem helguð var verndarhátíð heilagrar guðsmóður. Kirkjan var reist árið 1735 en árið 1929 lét stjórn bolsévika leggja hana í rúst. Allt frá 11. öld var hinn efsti dómur algengt myndefni í freskum í úkraínskum kirkjum. Á 15. öld fóru stórar helgimyndir með sama myndefni einnig að birtast í timburkirkjum. Þetta er brot úr slíku verki og sýnir gapandi gin vítisskrímslisins, sem er án efa tilfinningaþrungnasti og dramatískasti hluti myndbyggingarinnar.
Við myndgerð undirheimanna virðast listamenn hafa verið síður bundnir af hefðbundnum reglum en þegar þeir fengust við annað myndefni. Úkraínskir listamenn gáfu ímyndunaraflinu því gjarnan lausan tauminn þegar þeir brugðu upp myndum úr neðra og sýndu jafnvel púka og syndara á gamansaman hátt. Léttur og skissukenndur stíll alþýðumálarans, í samspili við örugg pensilför, gæðir þessa svipmynd úr helvíti lífi. Í logunum birtast persónur og andlit, máluð af léttleika sem minnir á vatnslitamynd. Myrkrahöfðinginn er tröllaukinn og hefur á myndinni náð taki á tveimur syndurum sem eru auðkenndir með nafni; það eru Júdas Ískaríot og villutrúarmaðurinn Aríus (upphafsmaður aríanismans). Fleiri fordæmdar sálir eru auðkenndar með áletrunum, svo sem barnamorðingi, drykkjumaður, norn og kaldrifjaður auðmaður. Á þessari mynd birtist heimur syndaranna eins og alþýðan gerði sér hann í hugarlund.



























