Innkaupanefnd

Í Innkaupanefnd Listasafns Íslands sitja:

Ingbjörg Jóhannsdóttir safnstjóri, formaður

Lárus Sigurður Lárusson, skipaður án tilnefningar

Tinna Guðmundsdóttir, tilnefnd af SÍM


Erindi til Innkaupanefndar sendist á info@listasafn.is

Í Myndlistarlögum 2012 nr. 64 25. júní segir um innkaupanefnd Listasafns Íslands:

II. kafli. Listasafn Íslands

5. gr. Innkaupanefnd
Á vegum Listasafns Íslands starfar þriggja manna Innkaupanefnd skipuð af ráðherra til þriggja ára í senn. Í nefndinni situr safnstjóri, einn fulltrúi tilnefndur af Sambandi íslenskra myndlistarmanna og einn án tilnefningar. Ráðherra skipar formann úr hópi nefndarmanna.

Innkaupanefndin ákveður kaup listaverka. Hún getur heimilað safnstjóra að ráðstafa allt að 20% af því fé sem árlega er ætlað til listaverkakaupa til kaupa á innlendum verkum.

Innkaupanefnd fjallar um gjafir sem Listasafni Íslands eru boðnar og metur hvort þær skuli þegnar. Gjöf skal fylgja gjafabréf. Safnið má aldrei selja eða á annan hátt láta af hendi listaverk, er það hefur þegið að gjöf, nema að fengnu samþykki gefanda.

Heimilt er að fenginni umsögn Innkaupanefndar að selja listaverk úr eigu Listasafns Íslands í því skyni að kaupa annað verk eftir sama listamann er æskilegra þykir að sé í eigu safnsins.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 — 17, lokað á mánudögum yfir vetrartímann (1.10 — 30.4)