Námskeið í myndlæsi fyrir kennara í Safnasafninu

8.9.2026

Við þökkum fyrir þátttökuna á námskeiði í Sjónarafli – þjálfun í myndlæsi sem haldið var fyrir kennara á Norðurlandi í samstarfi Listasafns Íslands við Safnasafnið við Svalbarðseyri þar sem nú stendur yfir sýningin Ísland úr fjarska.

Sjónarafl miðar með markvissum hætti að því að tengja kennslu í myndlæsi og listasögu við skólakerfið og auka þekkingu nemenda á menningarsögu og menningararfi þjóðarinnar. Þjálfun í myndlæsi eykur einnig hæfni í tjáningu, virkri hlustun, hugtakaskilningi og gagnrýnni hugsun.

Verkin á sýningunni Ísland úr fjarska voru notuð til kennslu í þjálfun myndlæsis, en þau hafa margt að geyma og eru áhugaverð fyrir margra hluta sakir. Við hvetjum fólk til þess að kynna sér sýninguna og Safnasafnið, en sýningin stendur yfir til 4. október. Nánari upplýsingar um sýninguna má finna hér: Ísland úr fjarska | Listasafn Íslands.

Hægt er að bóka námskeiðið Sjónarafl – þjálfun í myndlæsi fyrir kennarahópa á öllum skólastigum með því að senda póst á netfangið mennt@listasafn.is

Þjálfun í myndlæsi eykur hæfni í tjáningu, virkri hlustun, hugtakaskilningi og gagnrýnni hugsun.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17