Krakkaklúbburinn Krummi

lau

17. okt

14:0016:00

Krummi
Safnahúsið

Fann ég á fjalli
Óskasteinar eru sagðir búa yfir töframætti. Í álfa- og huldufólkshluta sýningarinnar „Stattu og vertu að steini!“ – þjóðsögur í íslenskri myndlist skoðum við stóran og glitrandi óskastein og fræðumst um sögurnar sem honum tengjast. Að því loknu búum við til okkar eigin óskastein og ákveðum sjálf hvaða töframátt hann geymir.

Krakkaklúbburinn Krummi stendur fyrir fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá í hverjum mánuði þar sem kátum krökkum er boðið að fræðast um sýningarnar í Listasafns Íslands, skapa listaverk og leika sér í nærandi umhverfi. Með Krakkaklúbbnum Krumma vill Listasafn Íslands veita börnum og fjölskyldum þeirra tækifæri til þess að njóta góðra stunda saman á safninu. Dagskráin er vönduð og öllum er velkomið að taka þátt, sér að kostnaðarlausu.

Staðsetning: Safnahúsið við Hverfisgötu

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17