
Krakkaklúbburinn Krummi
lau
12. sept
14:00—16:00
Grímur, tónlist og tákn
Hvað leynist á bak við grímu? Verk James Merry veita innblástur að skapandi grímugerð. Einnig verða verk Bjarkar skoðuð og gestum Krakkaklúbbsins gefst tækifæri til þess að „teikna tónlist“ og sínar eigin nótur þar sem verkið Sorrowful Soil nýtist sem innblástur.
Krakkaklúbburinn Krummi stendur fyrir fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá í hverjum mánuði þar sem kátum krökkum er boðið að fræðast um sýningarnar í Listasafns Íslands, skapa listaverk og leika sér í nærandi umhverfi. Með Krakkaklúbbnum Krumma vill Listasafn Íslands veita börnum og fjölskyldum þeirra tækifæri til þess að njóta góðra stunda saman á safninu. Dagskráin er vönduð og öllum er velkomið að taka þátt, sér að kostnaðarlausu.
Staðsetning: Fríkirkjuvegur 7

