Gallerí Gangur í 40 ár

Samsýning

3.2.2023 — 4.6.2023

Listasafnið

Gangurinn hefur alla tíð verið rekinn á heimili Helga, en starfsemin hófst með sýningu á verki Hreins Friðfinnssonar For the Time Being snemma árs 1980 að Laufásvegi 79. Frá Laufásveginum flutti Gangurinn í Mávahlíð 24, síðan á Freyjugötu 32, þaðan á Rekagranda 8, og er nú í Brautarholti 8 en árin 2017–2018 hafði Gangurinn einnig útibú á Kárastíg 9 á Hofsósi á meðan Helgi bjó þar ásamt fjölskyldu sinni um eins árs skeið.

Meginmarkmið Helga með stofnun sýningarrýmisins á heimili sínu var að kynna myndlist erlendra samtímalistamanna hér á landi, en þegar galleríið var stofnað var kynning erlendrar samtímalistar hérlendis mjög fátíð. Þess má geta að Helgi hafði áður komið að stofnun og rekstri nokkurra sýningarrýma og má þar nefna Gallerí Output sem hann stofnaði ásamt Þóri Vigfússyni árið 1975, Gallerí Suðurgötu 7, Gallery Lóu í Haarlem í Hollandi og Gallerí Vísi í dagblaðinu Vísi, sem öll voru stofnuð árið 1976, sem og Nýlistasafnið árið 1978.


Gallerí Gangur er listamannarekið sýningarrými sem stofnað var af myndlistarmanninum Helga Þorgils Friðjónssyni árið 1979 og er líklega elsta einkarekna gallerí landsins sem starfað hefur samfellt frá stofnun.

Þeir listamenn sem sýnt hafa í Ganginum fást við myndlist í ýmsum miðlum og hefur Helgi leitast við að sýna verk listamanna sem vinna með aðra strauma en tíðkast á Íslandi, t.d. ofurraunsæi, töfraraunsæi, ný-súrrealisma, geómetrísk flatarmálverk og hugmyndalist/konseptlist. Meðal þeirra eru Karin Kneffel, Milan Kunc, Helmut Federle, Stephen McKenna, James Rielly, Jan Knap, Sigrid Sandstrom, Robert Devriendt, Jenny Watson, Thomas Huber, Lisa Milroy, John Zürier, Urs Luthi og síðast en ekki síst svissneski listamaðurinn Martin Disler sem sýndi fyrstur erlendra listamanna í Ganginum árið 1980. Margir þessara listamanna hafa tengst landi og þjóð og haft áhrif á og auðgað íslenskt myndlistarlíf á margvíslegan hátt, t.d. með kennslu í Myndlista- og handíðaskóla Íslands, með þátttöku í sýningum í helstu söfnum landsins og með því að kynna íslenska listamenn erlendis. Þá hafa margir listamannanna dvalið um lengri eða skemmri tíma á Íslandi og má til að mynda merkja áhrif þess í ákveðnum verkum þeirra, svo að segja má að áhrifin séu á báða bóga.

Varla verður komið tölu á fjölda þeirra samtímalistamanna sem sýnt hafa verk sín í Ganginum á þeim 42 árum sem galleríið hefur verið starfrækt. Langflestir þeirra eru erlendir listamenn og sumir þekktir á alþjóðavísu

Árið 2020 var haldið upp á 40 ára afmæli Gangsins með sýningu á verkum þeirra erlendu listamanna sem hafa átt verk á sýningum Gangsins í gegnum tíðina. Hjónin Helgi Þorgils og Rakel Halldórsdóttir buðu listamönnunum að taka þátt í afmælissýningunni með því að senda verk á sýninguna. Allir sem til náðist brugðust vel við og sendu verk á sýninguna, sem þeir jafnframt gáfu þeim hjónum til eignar. Þess má geta að árið 2020 geisaði Covid-19-faraldurinn um allan heim og hafði það töluverð áhrif á framgang sýningarinnar. Miklar tafir urðu á sendingum verkanna og því var brugðið á það ráð að dreifa sýningunni yfir árið með þremur opnunum.  

Salur

2

3.2.2023 4.6.2023

Sýningarstjóri

Vigdís Rún Jónsdóttir

Verkefnastjóri sýninga

Vigdís Rún Jónsdóttir

Fræðslu- og útgáfustjóri

Ragnheiður Vignisdóttir

Markaðs- og kynningarmál

Guðrún Jóna Halldórsdóttir

Ljósmyndun og tæknimál

Sigurður Gunnarsson

Forvarsla

Ólafur Ingi Jónsson

Steinunn Harðardóttir

Uppsetning

Gylfi Sigurðsson

Indriði Ingólfsson

Steinunn Harðardóttir

Að afmælisárinu loknu gáfu þau Helgi og Rakel verkin sem voru á sýningunni til Listasafns Íslands, samtals 117 listaverk eftir 84 listamenn frá 22 löndum sem Listasafn Íslands efnir nú til sýningar á. Þessi höfðinglega gjöf er mikilvæg viðbót við listaverkasafnið og þýðingarmikil heimild um framlag Gangsins til listalífsins hér á landi undanfarna fjóra áratugi.

Gangurinn Gallerí í 40 ár

4.3.2023 — 1.10.2023

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 — 17, lokað á mánudögum yfir vetrartímann (1.10 — 30.4)