Madeleine

Dodda Maggý

1.9.214 — 30.9.2014

Listasafnið

Listamaðurinn Dodda Maggý sýnir verkið Madeleine í Kaffistofu Listasafns Íslands. Í hljóð/myndrænum innsetningum sínum gerir hún gjarnan tilraun til að samtvinna myndlist, hljóðlist og tónlist. Verk hennar einkennast af ljóðrænu þar sem hún kannar óáþreifanleg tilfinningaleg fyrirbæri í gegnum skynræna upplifun áhorfandans.

Dodda Maggý er fædd árið 1981 og hefur lokið BA námi við myndlistardeild Listaháskóla Íslands og hlaut síðar MFA-gráðu bæði í hljóð- og myndlist frá konunglega listaháskólanum í Kaupmannahöfn.

Aðgangur ókeypis og allir velkomnir. Fyrsta fimmtudag í mánuði kl. 17.00 er kynntur til leiks listamaður (eða hópur listamanna) og myndbandsverk hans. Kynningunum er ætlað að efla vídeólist í landinu og skapa vettvang fyrir umræður.

Vídeósýningarnar á kaffistofunni eru samstarfsverkefni Listasafns Íslands og 700IS Hreindýralands

3.10.2014 — 2.11.2014

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 — 17, lokað á mánudögum yfir vetrartímann (1.10 — 30.4)