Úkraínskar helgimyndir í aldanna rás

Þar sem ljósið lifir

17.10.2026 — 17.10.2027

Listasafnið

Úkraínskar helgimyndir

Úkraínsk íkon veita sýn inn í einstaklega ríkan menningararf. Á þessari sýningu gefst tækifæri til að skoða hann eins og hann birtist í verkum úr safneign Listasafns Úkraínu í Kænugarði. Áherslan er á kristna myndlist í aldanna rás en verkin spanna tímabilið frá lokum 12. aldar til upphafs 19. aldar. Í verkunum má sjá hvernig úkraínsk list dró í upphafi dám af menningu Býsans. Síðar gætti áhrifa frá gotneskri list og endurreisninni. Á barokktímanum tóku nýir straumar að móta þjóðmenningu landsins: Veraldleg myndefni ruddu sér til rúms, litavalið varð djarfara og skreytingarnar íburðarmeiri. Í þróun íkonagerðarinnar speglast jafnframt saga úkraínsku þjóðarinnar.

 

Að sýningunni standa Listasafn Íslands, Þjóðminjasafn Íslands og Listasafn Úkraínu, og er markmið samstarfsins að efla menningarsamskipti og gagnkvæman skilning milli þjóðanna tveggja.

Salur

3

17.10.2026 — 17.10.2027

Sýningarstjóri

Oleksandra Shevliuga

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17