Liðnar sýningar
2021
2020
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2019
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2018
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2017
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2016
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2015
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2014
desember, nóvember, október, september, ágúst, júní, maí, mars, febrúar
2013
2012
2011
2010
2000
Sýningar

MUGGUR - GUÐMUNDUR THORSTEINSSON
Á sýningunni verður skyggnst inn í sérstæðan myndheim Muggs sem spannar víð svið: ævintýraheima þar sem fíngerðir prinsar og prinsessur dvelja í fögrum höllum, tröllaheima myrkurs og ógnar, landslag og sveitasælu á Íslandi, ferðaminningar frá framandi stöðum, náðarheim trúarinnar þar sem Kristur læknar sjúka, en einnig skoplegar og skondnar teikningar og þjóðsögur.
Lesa meira
DEATH IS ELSEWHERE
RAGNAR KJARTANSSON
Á björtum sumarmánuðum sýnir Listasafn Íslands vídeóinnsetninguna Death Is Elsewhere eftir Ragnar Kjartansson sem hann tók upp á íslenskri sumarnótt, þegar aldrei dimmir. Þetta sjö rása verk er ein þeirra stóru vídeóinnsetninga sem hafa verið áberandi í listsköpun Ragnars síðustu ár þar sem endurtekningar, tími og rúm leika veigamikið hlutverk.
Lesa meira
HALLÓ, GEIMUR
Fjarlægar víðáttur í óendanlegum alheiminum hafa frá upphafi verið manninum hugleiknar og í aldanna rás hafa listamenn túlkað og tekist á við hugmyndir sínar um geiminn og miðlað þeim með fjölbreyttum hætti.
Á sýningunni Halló, geimur er skyggnst inn í undraveröld himingeimsins með hjálp listaverka í safneign Listasafns Íslands.

OF THE NORTH
Verkið Of the North frá árinu 2001 er unnið út frá safni Steinu af vídeóupptökum, mestmegnis af náttúru Íslands, yfirborðinu eða því sem skoða má í smásjá. Örverur jafnt sem brim hafsins og bráðnandi ís, berghrun ásamt margs konar náttúrufyrirbærum sem snerta jarðmyndun og niðurbrot á plánetunni okkar. Verkið vísar jafnframt út í geiminn þar sem sjá má hnattlaga kúlurnar snúast um ímyndaðan ás í seiðandi rytma með öllum þeim hljóðum sem fylgja.
Lesa meira
Sjón er sögu ríkari
Sýning á verkum Sigurjóns Ólafsson tileinkuð heimsóknum skólabarna og foreldra þeirra.
Lesa meira