Samspil – SIGURJÓN ÓLAFSSON & FINN JUHL
HUGARFLUG MILLI HÖGGMYNDAR OG HÖNNUNAR
Samspil varpar nýju ljósi á tengsl danska arkitektsins Finns Juhl (1912-1989) og Sigurjóns Ólafssonar (1908-1982) á árunum 1939 til 1945. Þeir voru báðir brautryðjendur, hvor á sínu sviði, og fóru ótroðnar slóðir í tilraunum sínum með form og efni.
Á sýningunni eru meðal annars stóllinn Pelikanen og sófinn Poeten, ásamt verkum eftir Sigurjón sem Finn Juhl valdi í samleik við húsgögn sín á sýningu Snedkerlaugets í Kaupmannahöfn og á heimili sínu Kratvænget 15, Charlottenlund, sem nú er orðið að safni í eigu danska ríkisins. Á síðari árum hafa verk Finns Juhl notið mikilla vinsælda um víða veröld, meðal annars fyrir tilstuðlan danska fyrirtækisins Onecollection, sem hefur einkaleyfi á að framleiða húsgögn hönnuð af Finn Juhl.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar er opið laugardaga og sunnudaga kl. 11-17.
NÁNAR Á HEIMASÍÐU SAFNSINS
Sýningarstjórar: Æsa Sigurjónsdóttir og Birgitta Spur.
Dönsku húsgagnaframleiðendurnir Onecollection og Epal styrkja sýninguna.